Hoppa yfir valmynd
22. janúar 2016 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 2/2016 Úrskurður 8. janúar 2016

Mál nr. 2/2016                       Aðlögun kenninafns: Daníelsson

 


Hinn 8. janúar 2016 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 2/2016 en erindið barst nefndinni 4. janúar:

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 29. desember 2015, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XXX um að sonur hennar taki upp kenningu til föður síns, Daniele YYY. Óskar hún að rita eiginnafn föðurins verði lagað að íslensku máli, Daníelsson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

 

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Daníelsson.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta