Hoppa yfir valmynd
28. maí 2019 Heilbrigðisráðuneytið

Greiðsluþátttaka vegna tæknifrjóvgunar aukin umtalsvert

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett reglugerð sem kveður á um aukna greiðsluþátttöku sjúkratrygginga í kostnaði þeirra sem fara í tæknifrjóvgun. Þegar reglugerðin tekur gildi verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna tæknifrjóvgunar orðin meiri en hún hefur áður verið. „Það er ánægjulegt að geta gert þessa breytingu, því hún jafnar aðgengi fólks að mikilvægri þjónustu“ segir ráðherra.

Aukinn kostnaður ríkissjóðs vegna þessara breytinga er áætlaður um 40 milljónir króna á ári. Greiðsluþátttakan miðast við gjaldskrá fyrir þessa þjónustu sem Sjúkratryggingar Íslands gefa út og hefur verið staðfest af ráðherra.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

  • Hlutdeild sjúkratrygginga hækkar úr 30% í 65% vegna annarrar meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun.
  • Fyrir þriðju og fjórðu meðferð í glasa- eða smásjárfrjóvgun verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga 65% en hún var engin fyrir.
  • Hlutdeild sjúkratrygginga vegna fyrstu meðferðar í glasa- eða smásjárfrjóvgun hækkar úr 5% í 65% ef um er að ræða ófrjósemisvandamál vegna lyfjameðferðar, geislameðferðar eða beinmergsflutnings. Hjá öðrum verður greiðsluþátttakan óbreytt.
  • Sjúkratryggingar munu eftir reglugerðarbreytinguna taka þátt í kostnaði við frystingu á fósturvísum.

Reglugerðin hefur verið send Stjórnartíðindum og öðlast gildi við birtingu.

Reglugerð um breytingu á regugerð nr. 1239/2018

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta