Hoppa yfir valmynd
8. desember 2005 Innviðaráðuneytið

Vegrýni sem hluti af umferðaröryggisaðgerðum

Samgönguráðherra var fyrr í dag viðstaddur blaðamannafund þar sem EuroRAP vegrýniverkefninu var hrint af stað.

EuroRAP stendur fyrir European Road Assessment Programme, og er vegrýniverkefni sem hefur verði í gangi víðsvegar um Evrópu undanfarin ár.

Það er FÍB sem er umsjónaraðili verkefnisins, sem er unnið með styrk frá Umferðarstofu fyrir hönd Samgönguráðuneytis ásamt því að nokkur fyrirtæki standa undir rekstrarkostnaði M.Benz bifreiðar sem notuð verður í verkefninu. Fyrirtækin eru: Bílaumboðið Askja, Lýsing, VÍS, Samskip og Goodyear. Vegagerðin verður FÍB innan handar með upplýsingagjöf og önnur þau atriði sem þörf er á.

Sturla Böðvarsson tilkynnti það þegar hann tók við umferðarmálum, og þar með umferðaröryggismálum, að sjálfstæð vegrýni yrði tekin upp sem hluti af umferðaröryggisaðgerðum. Með samþykkt samgönguáætlunar, síðastliðið vor, var samþykkt umferðaröryggisáætlun sem markar stefnu stjórnvalda til framtíðar í umferðaröryggismálum. Með EuroRAP verkefninu nær hluti markmiða umferðaröryggisáætlunar fram að ganga.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta