Starfshópur skipaður vegna endurskoðunar laga um mat á umhverfisáhrifum
Starfshópur skipaður vegna endurskoðunar laga um mat á umhverfisáhrifum
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp með það hlutverk að endurskoða í heild sinni lög um mat á umhverfisáhrifum.
Lögin byggja á tilskipun Evrópusambandsins um mat á umhverfisáhrifum. Meginmarkmiðin með heildarendurskoðun laganna eru að auka skilvirkni í ákvarðanatöku við mat á umhverfisáhrifum og að tryggja sem best aðkomu almennings og annarra hagsmunaaðila að ferlinu þannig að hún samræmist sem best ákvæðum Árósasamningsins hvað varðar þátttökuréttindi almennings.
Vinna við endurskoðun laganna hófst á árinu 2018 með upphafsfundi með hagsmunaaðilum auk þess sem leitað hefur verið eftir hugmyndum og athugasemdum í opnu samráðsferli. Einnig er hafin greiningarvinna á tilteknum þáttum í löggjöf nágrannalandanna sem fjalla um ferli mats á umhverfisáhrifum og leyfisveitingar. Niðurstaða greiningarinnar mun nýtast sem grunnur í vinnu starfshópsins.
Starfshópinn skipa:
- Kolbeinn Óttarsson Proppé, formaður, skipaður án tilnefningar,
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri, tilnefnd af Skipulagsstofnun,
- Hildur Dungal, lögfræðingur, tilnefnd af samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti,
- Jón Gunnarsson, alþingismaður, tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
- Pétur Reimarsson, verkfræðingur, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins,
- Sigríður Droplaug Jónsdóttir, tilnefnd af umhverfisverndarsamtökum og
- Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.