Hoppa yfir valmynd
20. apríl 2010 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mál nr. 140/2009

Úrskurður

Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða þann 20. apríl 2010 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A nr. 140/2009.

 

1.

Málsatvik og kæruefni

Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 9. desember 2009, vakti Vinnumálastofnun athygli kæranda, A, á því að samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, ljúki bótatímabili hans hjá Atvinnuleysistryggingasjóði þann 31. desember 2009. Kærandi vildi ekki una þeirri ákvörðun og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi, dagsettu 4. janúar 2010. Vinnumálastofnun krefst þess að hin kærða ákvörðun verði staðfest.

Kærandi kveðst ekki vera sammála því að atvinnuleysisbætur til hans eigi að falla niður þann 1. janúar 2010. Hann telur að með bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar sé gengið á þegar áunnin réttindi þegar ákvæðið var sett. Hann telur sig því eiga rétt á áframhaldandi bótum út það tímabil sem eftir sé samkvæmt greiðsluseðli atvinnuleysisbóta, dags. 1. desember 2009. Samkvæmt honum séu 188 dagar ónýttir.

Til vara bendir kærandi á heimild til þess að geyma bótarétt skv. 26. og 28. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hér sé um að ræða tvö tímabil, annars vegar vegna veikinda um það bil tvær vikur í lok apríl og byrjun maí 2006 og hins vegar um það bil tvær vikur vegna jólaleyfis með fjölskyldunni erlendis um áramótin 2007/2008. Enn fremur telur kærandi það með öllu óskiljanlegt að bótaþegi missi bótarétt fyrir þann tíma sem hann fær tímabundna vinnu en hann hafi unnið í maí til september 2005 og tekið mánaðarsumarleyfi í kjölfarið. Honum þætti eðlilegt að þetta tímabil félli undir geymdan bótarétt og hann bendir á að samtals séu þetta sex mánuðir.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 29. mars 2010, kemur fram að kærandi hafi fyrst sótt um atvinnuleysisbætur hjá stofnuninni fyrir gildistöku laga um atvinnuleysistryggingar þann 7. janúar 2005 og hafi hann þegið atvinnuleysisbætur þann 1. júlí 2006 er lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, tóku gildi. Samkvæmt bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, geti þeir sem hafa verið skráðir atvinnulausir hjá Vinnumálastofnun fyrir 15. nóvember 2005 að hámarki átt rétt til grunnatvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til 31. desember 2009 en þó ekki lengur en í fimm ár frá því að þeir fyrst skráðu sig atvinnulausa hjá stofnuninni. Ákvæðið eigi við um þá sem hafi verið samfellt án atvinnu frá 15. nóvember 2005 eða starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði.

Í ákvæði til bráðabirgða III með lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að ákvæði laganna eigi að öllu leyti við um þá sem skráðir höfðu verið atvinnulausir fyrir gildistöku laganna, hafi þeir starfað samfellt í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði. Hafi sá tryggði starfað í meira en sex mánuði áður en hann sótti aftur um atvinnuleysisbætur skuli ekki litið til fyrra bótatímabils samkvæmt eldri lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 og ekki gert að skilyrði að eldra tímabili ljúki áður en tímabil skv. 29. gr. gildandi laga um atvinnuleysistryggingar hefjist.

Samkvæmt greiðslusögu kæranda og fyrirliggjandi gögnum frá Ríkisskattstjóra hafi kærandi ekki starfað í sex mánuði á umræddu tímabili. Kærandi hafi því ekki áunnið sér rétt á nýju bótatímabili, hvorki á grundvelli 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar né bráðabirgðaákvæðis III sömu laga. Það sé því niðurstaða Vinnumálastofnunar að bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar eigi við í máli kæranda og geti hann því ekki notið greiðslu atvinnuleysistrygginga eftir 31. desember 2009 nema að öðrum ákvæðum laganna uppfylltum.

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar segist kærandi ekki vera sammála túlkun Vinnumálastofnunar á bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysisbætur og telji sig eiga rétt á áframhaldandi greiðslum atvinnuleysistrygginga fyrir það tímabil sem eftir sé samkvæmt greiðsluseðli stofnunarinnar. Vinnumálastofnun telji að kærandi hafi ekki mátt vænta þess að tímabil héldi áfram að líða fram yfir það hámark sem sett sé í bráðabirgðaákvæði II með lögum um atvinnuleysistryggingar. Í bráðabirgðaákvæði II komi skýrt fram að þeir sem heyri undir ákvæðið geti að hámarki átt rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta til 31. desember 2009. Ljúki fimm ára bótatímabili fyrir þann tíma geti sá sem um ræðir ekki átt rétt til atvinnuleysisbóta lengur en það tímabil vari. Á greiðsluseðlum atvinnuleysisbóta komi því fram þeir dagar sem atvinnuleitandi hafi nýtt á bótatímabili sínu, sem og þeir dagar sem ónýttir eru. Miðist sá útreikningur ávallt við yfirstandandi bótatímabil en ekki lokadagsetningu bráðabirgðaákvæðis II með lögum um atvinnuleysistryggingar, enda mögulegt að þeir sem falla undir bráðabirgðaákvæðið tæmi rétt sinn fyrir 31. desember 2009.

Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 31. mars 2010, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 14. apríl 2010. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.

 

2.

Niðurstaða

Lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, öðluðust gildi 1. júlí 2006 og leystu þá af hólmi lög sama efnis nr. 12/1997. Með hinum nýju lögum voru gerðar ýmsar breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu, meðal annars var boðið upp á að atvinnuleysisbætur yrðu tekjutengdar í allt að þrjá mánuði frá tilteknu tímamarki, sbr. 32. gr. laganna, og að lengd tímabils sem atvinnuleysisbætur væru greiddar fyrir takmarkaðist við ákveðið hámark, sbr. 29. gr. laganna. Þar sem meginreglur hinna nýju laga gátu annað hvort aukið réttindi þeirra sem voru þá á atvinnuleysisbótum eða dregið úr þeim, var með ákvæðum I–III til bráðabirgða tekin afstaða til réttarstöðu þeirra atvinnuleitanda sem nutu greiðslu atvinnuleysisbóta áður en hin nýju lög komu til framkvæmda. Kærandi var einn þeirra sem tilheyrði þessum hópi atvinnuleitanda.

Fallist verður á það með Vinnumálastofnun að ákvæði II. til bráðabirgða hafi átt við um kæranda þegar hin kærða ákvörðun var tekin en lagaákvæðið er svohljóðandi:

Sá sem var skráður atvinnulaus fyrir 15. nóvember 2005 og hefur verið án atvinnu samfellt síðan eða hefur starfað í skemmri tíma en sex mánuði á innlendum vinnumarkaði getur að hámarki átt rétt á grunnatvinnuleysisbótum samkvæmt lögum þessum til 31. desember 2009 en þó ekki í lengri tíma en fimm ár frá skráningu hjá svæðisvinnumiðlun að teknu tilliti til starfstímabila hans. Að öðru leyti gilda ákvæði laga þessara um réttindi hans og skyldur innan atvinnuleysistryggingakerfisins.

Í ljósi þess að ákvæði þetta mælir fyrir um stöðvun greiðslu atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 að telja þá verður hin kærða ákvörðun staðfest með vísan til þess rökstuðnings sem Vinnumálastofnun hefur fært fyrir henni.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar í máli A frá 9. desember 2009 um það að hann eigi ekki rétt til atvinnuleysisbóta frá og með 1. janúar 2010 er staðfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formaður

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta