Hoppa yfir valmynd
30. október 2020 Matvælaráðuneytið

Ráðherra fór yfir stöðu varðandi riðu í Skagafirði

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir stöðunni vegna staðfestrar riðuveiki í Skagafirði. Rannsóknir hafa leitt í ljós að riðuveiki er staðfest á fjórum sauðfjárbúum í Skagafirði, þ.e. Stóru-Ökrum 1, Syðri-Hofdölum, Grænumýri og Hofi í Hjaltadal.

Ráðherra gerði á fundinum grein fyrir stöðunni og þeim verkefnum sem við blasa. Fulltrúar atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, umhverfis- og auðlindaráðuneytisins, Matvælastofnunar og Umhverfisstofnunar áttu sameiginlegan fund um málið eftir hádegi í gær, m.a. til að ræða mögulegar lausnir við förgun.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Ég hef lagt ríka áherslu á að það verði allt gert til að styðja við bændur á svæðinu í gegnum þetta áfall. Bæði fjárhagslega en um leið að allir þær ráðstafanir sem grípa þarf til verði framkvæmdar í samráði við bændur og af virðingu við þá skelfilegu stöðu sem þeir standa nú frammi fyrir. Í öllu þessi máli hefur verið mjög öflugt samstarf milli ráðuneyta og stofnanna og allir að róa í sömu átt.“

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

17. Samvinna um markmiðin
15. Líf á landi

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta