Mál nr. 119/2024 Úrskurður 20. nóvember 2024
Mál nr. 119/2024 Millinafn: Úlfberg
Hinn 20. nóvember 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 119/2024 en erindið barst nefndinni 1. nóvember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn, að vera uppfyllt. Skilyrði 2. mgr. 6. gr. eru:
- Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- Nöfn sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Millinafnið Úlfberg er dregið af íslenskum orðstofni, hefur ekki nefnifallsendingu, ekki unnið sér hefð sem eiginnafn og getur ekki orðið nafnbera til ama. Þá er nafnið ekki ættarnafn og uppfyllir því skilyrði 6. gr. laganna.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Úlfberg er samþykkt.