Föstudagspóstur 27. september 2024
Heil og sæl.
Hér kemur föstudagspóstur vikunnar.
Utanríkisráðherra tekur þessa dagana þátt í allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og tengdri dagskrá og nýtur þar liðsinnis okkar góðu fastanefndar í New York.
Þar hefur hún átt fjölda tvíhliða funda, til að mynda með utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Winston Peters.Excited to be back in New York for the historic UNGA79. The United Nations are the heart of the multilateral international system. I look forward to meeting colleagues during UNGA to strengthen bonds and discuss ways to contribute to a more peaceful and prosperous world. It’s up… pic.twitter.com/LevpfdN2Nb
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) September 25, 2024
Þá hitti hún Sviatlönu Tsikhanouskaya sem þakkaði fyrir stuðning Íslands við frjálst og lýðræðislegt Belarús.It was a pleasure to meet with Foreign Minister @winstonpeters to discuss the bilateral relations of 🇮🇸 and 🇳🇿, for example in the fields of green energy and tourism. We also touched on the situation in the town of Grindavík and how recent volcanic activity has impacted the… pic.twitter.com/lprKR2k2c5
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) September 25, 2024
Auk þess tók hún þátt í umræðum um mannúðarkrísuna í Súdan og átökin sem þar geisa. Undir þeim tilkynnti hún 70 milljóna króna viðbótarframlag Íslands í því efni.Always a pleasure to see my friend @thordiskolbrun. She is a steadfast voice for democracy, freedom & human rights.
— Sviatlana Tsikhanouskaya (@Tsihanouskaya) September 25, 2024
I am deeply grateful for 🇮🇸 Iceland’s firm support for a free & democratic #Belarus.#UNGA79 pic.twitter.com/ArUlSlJOMj
Þá fundaði hún með filippseysku fjölmiðlakonunni Mariu Ressa en hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2021. Frelsi fjölmiðla bar eðli máls samkvæmt á góma í samtali ráðherrans og Ressa.Civilians always pay the steepest price in conflict and the current crisis in Sudan is no different. We must all do what we can to alleviate suffering and given the unprecedented needs I was pleased on behalf of Iceland to be able to announce at a high-level event @UN today an… pic.twitter.com/VYhZ27wB8D
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) September 25, 2024
Ísland styður fjögur ríki sem hyggjast hefja mál á hendur Talíbanastjórninni í Afganistan þar sem til stendur að gera grein fyrir brotum hennar á kvennasamningi Sameinuðu þjóðanna.It was truly inspirational to meet @mariaressa and discuss her perspectives as an advocate for the freedom of the press & on the challenges we face today on account of disinformation & misinformation. Safeguarding democracy and free societies is a solemn duty for all of us. To do… pic.twitter.com/2WCAasn336
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) September 26, 2024
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra var sömuleiðis viðstaddur allsherjarþingið í New York og hitti þar António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna."Afghan women have shown courageous leadership... We recognize their vital role and heed their call." 🇮🇸 is a proud member of a cross-regional group which supports holding Taliban de facto authorities of #Afghanistan accountable for #CEDAW violations.https://t.co/Y0fjdvVKYz https://t.co/GM99MFRxix
— MFA Iceland 🇮🇸 (@MFAIceland) September 27, 2024
Utanríkisráðherra þakkaði Mariju Buric, fráfarandi framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, fyrir gott samstarf undanfarin ár.This morning, 🇮🇸 Prime Minister @Bjarni_Ben and 🇺🇳 Secretary-General @antonioguterres had a frank and friendly discussion on the future of multilateralism and the situation in #Ukraine and the Middle East. pic.twitter.com/lI1HwJeM2e
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) September 22, 2024
Dear @MarijaPBuric, thank you for your leadership and cooperation as Secretary General of the Council of Europe, which were crucial to last year's Reykjavík Summit. Leaders united around democracy, human rights, and the rule of law, reaffirmed their support for Ukraine, and… pic.twitter.com/fHHvDeOSpj
— Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir🇮🇸 (@thordiskolbrun) September 21, 2024
Auðunn Atlason sendiherra og Ágúst Már Ágústsson, varamaður sendiherra, reimuðu á sig hlaupaskóna í góða veðrinu í Berlín en þeir munu taka þátt í fimmtugasta Berlínarmaraþoninu í næstu viku.
Þá vakti sendiráðið athygli á þátttöku íslenskra hljómsveita á tónlistahátíðinni Reeperbahn í Hamborg en þar spiluðu meðal annars sveitirnar Kiasmos, Kusk og Óviti og Múr.
Þá var sendiherra viðstaddur þegar rithöfundurinn Sjón las upp úr ljóðabók sinni, Næturverkum, en þátttaka þess síðarnefnda er hluti af upplestrarröð á vegum Miðstöðvar íslenskra bókmennta.
Í Helsinki var sömuleiðis nóg um að vera en Harald Aspelund sendiherra skipaði í vikunni Arto Lahtela kjörræðismann Íslands í mótttöku en hann tekur við af Tero Ylinenpää sem gegndi stöðunni í átta ár.
Þá tóku sendiherrahjónin, Harald og Ásthildur Jónsdóttir, á móti fulltrúum sýslumannsembættanna í sendiherrabústaðnum í Helsinki þar sem góðar umræður áttu sér stað.
Þá mátti heyra djasstóna í sendiherrabústaðnum en Ingibjörg Elsa Turchi og hljómsveit léku þar fyrir viðstadda.
Þá héldu þau Kristín Einarsdóttir og Jón Karlsson, sem fara fyrir verkefninu Leikur að læra, kynningu og hittu sendiherrann.
Sendiráð okkar í Kaupmannahöfn fékk Guðmund Inga Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda til sín í heimsókn fyrir rúmri viku en hann afhenti Nordic Pioneer Prize-verðlaunin í sendiráðsbústaðnum.
Okkar fólk í Malaví gerði grein fyrir þeim árangri sem náðst hefur við framkvæmd verkefnis í Nkhotakota sem snýr að því að bæta aðgengi, gæði og jafnrétti í námi í skólum á svæðinu.
Sturla Sigurjónsson, sendiherra í London, var viðstaddur sýningu á verki listakonunnar Steinunnar Þórarinsdóttur við St. Mary the Virgin's-kirkjuna en hún er hluti af stærri sýningu Steinunnar sem ber heitið Vessel.
Starfsfólk sendiráðsins var þá viðstatt sýningu danshöfundarins Lovísu Óskar Gunnarsdóttur, When the Bleeding Stops í London en hún hafði hlotið styrk frá sendiráðinu þegar henni var boðið að flyja sýninguna í Dublin í fyrravor.
Listin var allsráðandi í London en listahátíðin Women in Art Biennale stendur þessa dagana yfir í Chelsea á King's Road.
Í Nuuk var haldið upp á vestnorræna daginn og má sjá fjölda skemmtilegra mynda frá honum á Facebook-síðu aðalræðisskrifstofu Íslands þar.
Þá fór alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Nuuk á dögunum en leikstjórinn Rúnar Rúnarsson var meðal annars viðstaddur hana vegna kvikmyndarinnar Ljósbrots en þess má geta að hún hlaut verðlaun á hátíðinni.
Kristín Anna Tryggvadóttir, staðgengill sendiherra í Nýju-Delí, hitti Chinenye Ifechukwu Anekwe, sjálfboðaliða á vegum Sameinuðu þjóðannan, og Aishwarya Sehgal frá Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. Staða þeirrar fyrrnefndu er fjármögnuð á grundvelli starfs GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu.
Sendiráð okkar í Ottawa vakti athygli á fundi sem fram fór í vikunni um málefni Úkraínu. Bill Blair, varnarmálaráðherra Kanada, var viðstaddur fundinn.
Þá heimsótti viðskiptafulltrúi sendiráðsins í Ottawa Nunavut-viðskiptaráðstefnuna sem fram fór á Grænlandi.
Í Osló hittust sendiherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjana í Osló í sænska sendiherrabústaðnum með aðstoðarseðlabankastjóranum Pål Longva. Þar var rætt mat Seðlabanka Noregs á efnahagsástandinu og framtíðarhorfur.
Þá stóð sendiráðið fyrir viðburði í sendiherrabústaðnum undir Oslo Innovation Week. Fimm nýsköpunarfyrirtæki frá Íslandi mættu og voru með kynningar fyrir gesti ásamt fjórum íslenskum fyrirlesurum sem sögðu frá sögum sínum úr viðskiptabransanum. Sendiráðið var einnig með svokallaða yfirtöku á Instagram-reikningi ráðuneytisins, sem glöggir lesendur tóku ef til vill eftir, þar sem sagt var frá nýsköpunarvikunni.
Sendiráð okkar í París vakti athygli á umfjöllun í frönskum fjölmiðli um íslensku lopapeysuna.
Þá var ýmislegt í gangi í Stokkhólmi, einkum í tengslum við íslenska menningardaga, sem haldnir eru næstu vikurnar.
Sendiráðið í Stokkhólmi tók í vikunni þátt í tungumálakaffi til að fagna evrópska tungumáladeginum. Þar fengu ungmenni tækifæri til að kynna sér fjölmörg evrópsk tungumál. Í íslenska básnum var áherslan lögð á að kynna hina sérstöku íslensku nafnahefð, sem vakti forvitni margra þátttakenda.
Bryndís Kjartansdóttir sendiherra ávarpaði kvikmyndagesti sem mættir voru til að sjá kvikmyndina Kulda og sagði frá menningardagskrá haustsins. Þá var hún einnig viðstödd bókamessuna í Gautaborg.
Okkar fólk í Tókýó vakti athygli á íslenska skyrinu. Hér má sjá Stefán Hauk Jóhannesson sendiherra og varamann hans, Ragnar Þorvarðarson, með skyrdollu í hönd.
Friðrik Jónsson, sendiherra í Varsjá, ávarpaði ráðstefnu í tengslum við loftslagssamstarf Íslands og Póllands á grundvelli Uppbyggingarsjóðs EES.
Hannes Heimisson, aðalræðismaður í Færeyjum, heimsótti Runavík og heilsaði upp á borgarstjórann, Tórbjørn Jacobsen.
Sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, Svanhildur Hólm Valsdóttir, fundaði á dögunum með Mike Sfraga, sem var í vikunni formlega staðfestur af Bandaríkjaþingi sem sendiherra Bandaríkjanna í málefnum norðurslóða.
Norrænu sendiráðin í Washington stóðu í vikunni fyrir norrænum bókmenntaviðburði, Nordic Voices, í samstarfi við Library of Congress. Hildur Knútsdóttir var fulltrúi Íslands en bókin hennar Myrkrið á milli stjarnanna/Night Guest kom núverið út í Bandaríkjunum.Congratulations to Mike Sfraga on his confirmation as the first US Ambassador-at-Large for Arctic Affairs. We look forward to the continued strong cooperation on arctic issues between Iceland and the United States 🇺🇸🇮🇸 pic.twitter.com/Gl9jH70QVO
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) September 26, 2024
Síðastliðna helgi tók Admiral Pierre Vandier frá Frakklandi við stöðu yfirmanns breytingaherstjórnar NATO (ACT) í Norfolk. Sendiherra og varnarmálafulltrúi sendiráðs voru viðstödd hátíðarathöfn af þessu tilefni. Á myndunum eru einnig Rob Bauer formaður hermálanefndar NATO og Jóna Sólveig Elínardóttir, POLAD, sem er ráðgjafi yfirmanns JFC Norfolk.Last night the #Nordic embassies 🇮🇸🇳🇴🇸🇪🇫🇮🇩🇰 in Washington DC co-hosted Nordic Voices, a literature event with @librarycongress. @hildurknuts represented 🇮🇸 and talked about Night Guest, a horror story, published in 🇺🇸 this month. pic.twitter.com/nCE8lzM208
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) September 27, 2024
Einar Gunnarsson, fastafulltrúi í Genf, ávarpaði mannréttindalotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna en Ísland fór fyrir mismunandi ríkjahópum í hinum ýmsu málum.Supreme Allied Commander Transformation change of command ceremony was a moment of reflection on NATO strength & unity. #ACT ensures Alliance adaptability & innovation to meet emerging 🌎security challenges & maintaining a strategic edge in defense capabilities. https://t.co/moy1IHwLei pic.twitter.com/g0WUlRBkm4
— Iceland in US 🇮🇸 (@IcelandInUS) September 25, 2024
In ID with WG on arbitrary detention #HRC57, Iceland on behalf of 🇩🇰🇪🇪🇫🇮🇮🇸🇱🇻🇱🇹🇳🇴🇸🇪 called for an end to arbitrary detention. Detention must not be used as a tool against political opponents, #HRDs, journalists and others exercising their civil & political rights. pic.twitter.com/K2RJ01yPT4
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) September 25, 2024
Þá náðist samkomulag um fríverslunarsamning EFTA-ríkjanna við Kósovó í höfuðborginni Pristina.In ID with Commission of Inquiry on Syria #HRC57, Iceland on behalf of 🇩🇰🇪🇪🇫🇮🇮🇸🇱🇻🇱🇹🇳🇴🇸🇪 demanded an end to violations & abuses of international human rights law and IHL in Syria and urged all actors to cease indiscriminate and direct attacks on civilians and civilian objects. pic.twitter.com/oi4cW6XMxP
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) September 25, 2024
Skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu og fastafulltrúi gagnvart stofnunum SÞ í Róm, (FAO, WFP og IFAD) funduðu í vikunni með fulltrúum stofnananna þriggja. Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ (FAO) gegnir vegamiklu hlutverki í stefnumótun í málefnum hafsins á alþjóðavettvangi og situr Ísland í stjórn stofnunarinnar næstu tvö árin. Matvælaáætlun SÞ er áherslustofnun í mannúðaraðstoð í stefnu um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands og veita stjórnvöld framlög, auk kjarnaframlaga, til svæða þar sem fæðuskortur er alvarlegur, s.s. í Afganistan, Jemen og Súdan, auk þess að starfa með stofnuninni í samstarfslöndum Íslands með því að tryggja skólabörnum heilnæma máltíð á skólatíma. Þriðja stofnunin, Aðlþjóðaþróunarsjóður landbúnaðarins (IFAD) fjármagnar verkefni og veitir lán til þróunarríkjanna m.a. til að vinna að sjálfbærri þróun lamdbúnaðar og tryggja fæðuöryggi.The EFTA States 🇮🇸🇳🇴🇱🇮🇨🇭 and Kosovo🇽🇰 have successfully concluded their free trade agreement today in Pristina. Iceland looks forward to the new opportunities this agreement will bring for businesses in both regions. #FreeTrade #EFTA #Kosovo #EconomicGrowth pic.twitter.com/Gwx5W6U6zr
— Iceland in Geneva 🇮🇸 (@IcelandinGeneva) September 26, 2024
Sameiginlega EES-nefndin kom saman og samþykkti 96 upptökugerðir. Ný framkvæmdastjórn EFTA tók við í haust og var henni árnað heilla á fundinum.Great talks with FAO on #fisheries https://t.co/OjsdgivtP1
— MFA Iceland Development 🇮🇸 (@IcelandDevCoop) September 27, 2024
The first #EEA Joint Committee of the autumn was off to a great start with 96 acts incorporated into the #EEAAgreement in 46 JCDs!👊
— Icelandic Mission to the EU 🇮🇸 (@IcelandBrussels) September 23, 2024
We also offered a warm welcome and well wishes to @EFTAsecretariat new senior management👏 pic.twitter.com/6z1rauw95D
Inga Dóra Pétursdóttir, staðgengill sendiherra í Peking flutti erindi um reynslu Íslendinga á ráðstefnu um sjálfbæra orku og eyríki.
Embættismannanefnd Eystrasaltsráðsins hélt fund sinn í Tallinn, Eistlandi, 25-26. september. Emil Breki Hreggviðsson, fulltrúi Íslands í ráðinu, sótti fundinn. Um var að ræða fyrsta fundinn í formennsku Eistlands í ráðinu. Endurskoðun á starfsemi Eystrasaltsráðsins mun hefjast í formennsku Eistlands.Pleasure to be back to beautiful #Yantai to share Iceland’s ongoing journey towards carbon neutrality and how we achieved energy independence & security ⚡️As well as to learn from our fellow island countries in the Caribbean & Pacific islands 🏝️ pic.twitter.com/NfFYo2x805
— Inga Petursdottir (@IngaDoraP) September 24, 2024
Fleira var það ekki þessa vikuna og óskum við ykkur góðrar helgar.
Upplýsingadeild.