Hoppa yfir valmynd
15. október 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Jafnréttisþing 2024: Staða fatlaðra kvenna á vinnumarkaði

Uppfært 17. október: Jafnréttisþingi sem vera átti 24. okt. nk. er frestað fram á næsta ár.

 

Jafnréttisþing fer fram þann 24. október nk. og umfjöllunarefnið er að þessu sinni aðgengi, möguleikar og hindranir fatlaðra kvenna á íslenskum vinnumarkaði. Skráning á þingið er í fullum gangi og aðgangur er ókeypis:

Fyrirlesarar munu fjalla um leiðir til að brúa bilið á milli kerfa og út í atvinnulífið og um ástæður þess að fatlaðar konur tilkynna síður en aðrir um ofbeldi, þ. á m. á vinnumarkaði. Þátttakendur í pallborðsumræðum verða doktor í fötlunarfræðum, fulltrúar frá hagsmunasamtökum sem láta sig málefni fatlaðra kvenna varða og fulltrúar frá aðilum vinnumarkaðarins. 

Dagskránni lýkur á því að veitt verður sérstök jafnréttisviðurkenning.

Jafnréttisþing fer fram í Hörpu og eru öll velkomin en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins.

Á þinginu verður rittúlkun, táknmálstúlkun og gott aðgengi fyrir hjólastóla. Óskað er eftir að táknmálstúlkun sé pöntuð með sjö daga fyrirvara.

Dagskrá

Þingstjóri:      
Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar

8:15-9:00   
Húsið opnar  morgunverður

9:00-9:10 
Setning jafnréttisþings 2024
Ávarp ráðherra

9:10-9:35
Byggjum brýr á milli kerfa og út í atvinnulífið
Sara Dögg Svanhildardóttir, sérfræðingur í atvinnumálum fatlaðs fólks hjá Vinnumálastofnun

9:35-10:05
Ástæður þess að fatlaðar konur tilkynna ekki ofbeldi, þ. á m. á vinnumarkaði – Reasons Why Disabled Women Do Not Report Violence, including within the Labour Market
Eliona Gjecaj, doktorsnemi í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

10:05-10:20
S
kemmtiatriði
Madame Tourette (Elva Dögg Gunnarsdóttir)

10:20-10:40    
Kaffihlé

10:40-11:30    
Pallborðsumræður

  • Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
  • Halldór Oddsson, lögfræðingur á lögfræði- og vinnumarkaðssviði ASÍ
  • Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður á málefnasviði Samtaka atvinnulífsins
  • Jana Birta Björnsdóttir, gæðastjóri á sýkla- og veirufræðideild Landspítala og meðlimur í Tabú, feminískri fötlunarhreyfingu
  • Laufey Elísabet Löve, doktor í fötlunarfræðum og lektor við deild menntunar og margbreytileika við Háskóla Íslands
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

          Umræðustjóri: Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingiskona

11:30-11.45    
Jafnréttisviðurkenning og ráðstefnuslit
                

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta