Hoppa yfir valmynd
13. júlí 2021 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Úthlutun styrkja vegna fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Plast á strönd - myndHeidi Orava/norden.org

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum til sveitarfélaga vegna framkvæmda við fráveituverkefni fyrir árin 2020 og 2021. Umsóknir bárust frá 30 sveitarfélögum vegna 51 fráveituverkefnis og er áætlaður heildarkostnaður vegna þeirra um 3,5 milljarðar króna.

Öll verkefnin hlutu styrk, en styrkirnir eru veittir á grundvelli reglugerðar um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga.  Styrkhæfar fráveituframkvæmdir eru framkvæmdir við sniðræsi frá safnkerfum fráveitna, hreinsi­virki, dælustöðvar og útrásir.  Jafnframt eru styrkhæfar framkvæmdir við hreinsun ofanvatns, svo sem til að draga úr mengun af völdum örplasts.

Áætlaðar styrkveitingar vegna framkvæmda sveitarfélaganna við fráveituframkvæmdir á árunum 2020 og 2021 nema um 845 milljónum króna.


  • Úthlutun styrkja vegna fráveituframkvæmda sveitarfélaga - mynd úr myndasafni númer 1

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta