Hoppa yfir valmynd
13. september 2024 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Ísland komið í hóp bestu ríkja heims í netöryggismálum

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er ráðherra netöryggismála. - myndLjósmynd: Jón Snær Ragnarsson

Netöryggisgeta Íslands hefur stóraukist á undanförnum árum. Þetta kemur fram í nýútgefnum netöryggisvísi Alþjóðafjarskiptasambandsins (e. Global Cybersecurity Index) fyrir árið 2024. Mæld eru fimm svið sem lúta að netöryggi ríkja og hlaut Ísland 99,1 af 100 mögulegum stigum að þessu sinni. Í síðustu úttekt, sem framkvæmd var árið 2020, hlaut Ísland 79,8 stig. Fyrir vikið er Ísland nú í hæsta flokki, svokölluðum fyrirmyndarflokki, og telst því meðal 10% bestu ríkja af þeim 194 sem úttektin tók til. Niðurstöðurnar í ár fleyta Íslandi í 10. sæti Evrópuþjóða á sviði netöryggis en Ísland var í 31. árið 2020. Þegar horft er til allra ríkjanna 194 er Ísland í 23. sæti en var í 58. sæti árið 2020, en þá tóku aðeins 167 ríki þátt í úttektinni.

„Þetta er magnaður árangur sem við erum afar stolt af. Við erum nú meðal annars að uppskera eftir að hafa unnið markvisst eftir netöryggisáætlun sem við kynntum fyrir tveimur árum og höfum á þeim tíma átt í nánu samstarfi við fjölda aðila um hvað þurfi til að bæta í netöryggi. Ég er mjög þakklát fyrir það samstarf og hversu mikinn metnað okkar samstarfsaðilar hafa sýnt í að bæta það sem að þeim snýr,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem jafnframt fer með málefni fjarskipta og netöryggis.

Hún bætir því við að öryggi barna og ungmenna sé ofarlega á blaði þegar kemur að bættu netöryggi og aðgerðaáætlunin sem unnið er eftir hafi það sérstaklega að markmiði að auka vitund, fræðslu og tækniþekkingu, og bæta öryggi barna og unglinga á netinu.

Fjórum aðgerðum sé nú þegar lokið þar sem m.a. eru gerðar kannanir á netnotkun barna og ungmenna til þess að unnt sé að fylgjast með og aðlaga fræðslu til að tryggja hæfilega þekkingu og færni þeirra til að nota netið á öruggan hátt. Farið var í átak til að fræða börn, foreldra og kennara um netöryggi þar sem farið var víðsvegar um landið og 87 fræðsluerindi í grunnskólum haldin auk þess sem að vefsíðan Netumferðaskólinn var settur á fót til að halda áfram fræðslu og auka vitund um netöryggi. Farið var í að tryggja fjármögnun SAFT-verkefnisins sem hefur það að markmiði að stuðla að öruggri og jákvæðri netnotkun barna. Ýtt var undir þjálfun ungmenna á aldrinum 14 til 25 ára í tölvuöryggismálum með að halda Gagnaglímuna, sem er netöryggiskeppni Íslands. Samhliða þessu er verið að tryggja að nám um netöryggi verði hluti af námskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Skilvirkari rannsóknir

„Sá árangur sem við erum nú að ná í verulega bættu netöryggi hvetur okkur til að gera enn betur og nú erum við að uppfæra og skerpa aðgerðaráætlunina. Fjölmargt kemur þar við sögu,” segir Áslaug. Hún vill þó sérstaklega nefna aðgerðir sem snúa að börnum og ungmennum en m.a. sé ætlunin að ljúka nú aðgerðum sem eru hafnar og snúa að aldurtengdri aðgangsstýringu, upplýsingum fyrir fólk sem leitar að ólöglegu efni á netinu og endurskoðaðri tilkynningagátt um barnaníðsefni. Jafnframt er verið að efla tæknilega getu lögreglunnar til að rannsaka barnaníð á netinu með nýjum gagnavinnslukerfum, sem mun stuðla að skilvirkari rannsóknum og betri samvinnu við Europol og Interpol og bættum viðbúnað gegn barnaníð.

Úttekt Alþjóðafjarskiptasambandsins byggir á eftirfarandi fimm sviðum. Hér að neðan er hlutfallsleg einkunn Íslands á hverju sviði:

  • Lagalegt umhverfi (e. Legal Measures) 100%     (var 89% árið 2020)
  • Tækni (e. Technical Measures) 100%                     (var 81% árið 2020)
  • Skipulag (e. Organizational Measures) 97%         (var 88% árið 2020)
  • Hæfni (e. Capacity Development) 98,5%               (var 60% árið 2020)
  • Samvinna (e. Cooperative Measures) 100%         (var 81% árið 2020)

Fjölþættar aðgerðir skilað árangri

Fjöldi ríkja hefur lagt aukna áherslu á netöryggi á undanförnum árum, samhliða fjölgun netglæpa og tölvuárása, og er árangur Íslands sérstaklega eftirtektarverður í því ljósi. Þar ber helst að þakka aðgerðum stjórnvalda í tengslum við aðgerðaráætlun í netöryggi sem hleypt var af stokkunum árið 2022. Aðgerðaráætlunin samanstendur af 66 fjölbreyttum aðgerðum á ábyrgð átta ráðuneyta, þar af er 22 lokið og 38 komnar vel á veg. Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið fer með netöryggismál og hefur leitt vinnu í tengslum við aðgerðaráætlunina.

Aðgerðaáætlunin stefnir að tveimur meginmarkmiðum, annars vegar að hér á landi sé afburða hæfni og nýting á netöryggistækni og hins vegar að hér sé öruggt netumhverfi.

Aðgerðir sem stuðla að fyrrnefnda markmiðinu snúa m.a. að traustri netöryggismenningu og netöryggisvitund, öflugri menntun, rannsóknum og þróun, þjónustu og nýsköpun. Þá leggja aðgerðir sérstaka áherslu á netöryggisvitund og vernd barna en mikill árangur hefur náðst á því sviði á undanförnum árum sem fyrr segir.

Aðgerðir sem stuðla að markmiði um öruggt netumhverfi á Íslandi snúa að miklu leyti að öflugri löggæslu, vörnum og þjóðaröryggi ásamt skilvirkum viðbrögðum við atvikum og traustu lagaumhverfi. Til að mynda fela aðgerðir í sér greiningu og endurmat á valdheimildum stjórnvalda vegna alvarlegra netárása og hvort ákvæði almannavarnalaga þarfnist endurskoðunar með tilliti til þróunar í stafrænni tækni. Þá stendur til að endurskoða regluverk um starfsemi hýsingaraðila með staðfestu á Íslandi til að koma í veg fyrir brotastarfsemi í skjóli nafnleyndar.

Netöryggisvísir Alþjóðafjarskiptasambandsins

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum