Hoppa yfir valmynd
16. október 2024 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók við undirskriftum um átakið Hnífalaus framtíð

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og fulltrúar átaksins, frá vinstri: Valdís Eva Eiríksdóttir, Hrefna Dís Héðinsdóttir, Karen Birna Einarsdóttir Stephensen og Tinna Sigríður Helgadóttir.  - mynd

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag á móti fulltrúum átaksins Hnífalaus framtíð. Þær Hrefna Dís Héðinsdóttir, Karen Birna Einarsdóttir Stephensen, Tinna Sigríður Helgadóttir og Valdís Eva Eiríksdóttir, úr Verzlunarskóla Íslands, afhentu forsætisráðherra á annað þúsund undirskriftir þar sem hvatt er til hertra laga um vopnaburð.

Á fundinum ræddu þær um mikilvægi þess að ungt fólk upplifði sig öruggt og leggja yrði áherslu á að draga úr vopnaburði meðal þess. Þá kynntu þær fyrir forsætisráðherra tölfræði og tillögur um efnið.

Þær leggja áherslu á að hnífa eigi ekki að nota sem vopn og með hertum viðurlögum megi koma í veg fyrir alvarleg ofbeldisbrot og bjarga mannslífum. Þannig megi draga úr hnífaofbeldi á Íslandi.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta