Hoppa yfir valmynd
13. ágúst 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Samkomulag um úrbætur á húsnæði Hlíðar á Akureyri

Hlíð á Akureyri - myndLjómsmynd: Akureyrarbær

Ríkið og Akureyrarbær hafa komist að samkomulagi um fyrirkomulag vegna nauðsynlegra framkvæmda við húsnæði hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) stýrir verkefninu sem er hafið og gert ráð fyrir að verði að fullu lokið fyrir lok næsta árs. Kostnaður við framkvæmdirnar, allt að 1.250 milljónir króna, greiðist úr ríkissjóði.

Með framkvæmdunum verður húsnæði Hlíðar komið í ásættanlegt og betra horf, m.a. með nauðsynlegum viðgerðum á þökum, gluggum og lögnum, endurbótum á brunavörnum o.fl. Þá verða gerðar ýmsar endurbætur á rýmum með hliðsjón af þeim kröfum til húsnæðis og aðbúnaðar á hjúkrunarheimilum sem gerðar eru í viðmiðum heilbrigðisráðuneytisins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum