Hoppa yfir valmynd
21. ágúst 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Samið við þrjá aðila um umsjón útboðs á hlutum í Íslandsbanka

Í júní sl. voru samþykkt á Alþingi lög um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf. Lögin fela í sér að hlutur ríkisins í bankanum verði seldur í markaðssettu útboði eða útboðum. Slíkt sölufyrirkomulag er talið best til þess fallið að fylgja meginreglum sem áhersla er lögð á við ráðstöfun ríkiseigna: gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Í lögunum er m.a. tilgreint með hvaða hætti safnað er í tvær tilboðsbækur í útboði, hvernig verðlagningu verði háttað og úthlutun fari fram. Öllum áhugasömum verður heimilt að taka þátt í þeim útboðum sem fyrirhugað er að halda.

Þá auglýsti Fjársýsla ríkisins í sumar fyrir hönd ráðuneytisins eftir umsjónaraðilum útboðsins, bæði á innlendum og/eða erlendum markaði. Mikill áhugi, ekki síst af erlendum aðilum, var á að taka að sér umsjón með næsta útboði ríkisins á hlutum Íslandsbanka, en hlutverk umsjónaraðila er að annast skipulagningu og yfirumsjón útboðsins m.a. utanumhald tilboðsbóka.

Að undangengnu ofangreindu ferli hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið ákveðið að ganga til samninga við þrjá aðila, Barclays, Citi og Kviku, um að vera umsjónaraðilar í fyrirhuguðu útboði ríkisins á hlutum í Íslandsbanka.

Gert er ráð fyrir að samningum við aðilana þrjá verði lokið í þessum mánuði.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum