Hoppa yfir valmynd
9. október 2020 Forsætisráðuneytið

Stefna um gervigreind í mótun

Stefnumörkun um gervigreind, sem miðar að því að hámarka samfélagslegan og efnahagslegan bata og lágmarka kostnað og áhættu er nú til vinnslu innan forsætisráðuneytisins. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd sem er ætlað að skila tillögum að skýrri framtíðarsýn um hvernig íslenskt samfélag geti unnið með gervigreind öllum til hagsbóta. Nefndinni er ætlað að svara eftirfarandi spurningum:

  • Hver eru réttindi Íslendinga gagnvart nýrri tækni?
  • Hvert á hlutverk tækni gervigreindar að vera í íslensku samfélagi?
  • Hvaða gildi á íslenskt samfélag að hafa að leiðarljósi við innleiðingu nýrrar tækni?
  • Á hvaða vettvangi mun Ísland ræða og leysa álitamál sem koma upp er varða innleiðingu eða notkun nýrrar tækni?

Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun fyrir Ísland í fjórðu iðnbyltingunni en nefndina skipa einstaklingar með fjölbreyttan bakgrunn og sérfræðiþekkingu er snýr meðal annars að siðfræði, tækni, vinnumarkaði og samfélagslegum breytingum vegna nýrrar tækni. Með stefnunni á að leggja grunn að því að einstaklingar og fyrirtæki geti nýtt og þróað tækni í samfélagslegri sátt. Nefndina skipa:

  • Lilja Dögg Jónsdóttir, sérfræðingur í forsætisráðuneytinu (formaður nefndarinnar)
  • Kolbeinn H. Stefánsson, lektor við Háskóla Íslands
  • Ólafur Andri Ragnarsson, aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík
  • Þorbjörn Kristjánsson, doktorsnemi í heimspeki við Háskólann í Sheffield
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM

Nefndin mun skila tillögum til ráðherra fyrir þann 1. febrúar 2021.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta