Hoppa yfir valmynd
1. október 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Kristjana Arnarsdóttir er nýr aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra

Kristjana Arnarsdóttir - mynd
Kristjana Arnarsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar, mennta- og barnamálaráðherra.

Kristjana er með B.A.-próf í mannfræði og fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands og MSc-próf í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Kristjana hefur síðastliðin átta ár starfað hjá RÚV sem íþróttafréttamaður og þáttastjórnandi. Hún hefur til fjölda ára stýrt umfjöllun á RÚV frá mörgum stórmótum í íþróttum, unnið við innlenda dagskrárgerð í sjónvarpi og var spyrill í spurningaþættinum Gettu betur frá 2019-2023.

Maki Kristjönu er Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur, og saman eiga þau eina dóttur, Rósu Björk, sem er tveggja ára.

Kristjana hefur störf í dag, 1. október. Hún mun starfa ásamt Teiti Erlingssyni, sem einnig er aðstoðarmaður mennta- og barnamálaráðherra. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta