5000 færri hús umsagnarskyld
Umsagnarskylda Minjastofnunar Íslands vegna framkvæmda mun taka til umtalsvert færri húsa og mannvirkja ef áform ráðherra um breytingar á lögum um menningarminjar ná fram að ganga. Núverandi umsagnarskylda krefst mikillar vinnu af hendi sérfræðinga Minjastofnunar og eigenda eldri húsa og getur þannig unnið gegn markmiðum um vandaða minjavörslu.
Þetta var á meðal þess sem kom fram í samtali Jóhanns Páls Jóhannssonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við stjórnendur og aðra starfsmenn Minjastofnunar Íslands í gær.
Í heimsókninni fóru stjórnendur yfir framtíðarsýn og áskoranir stofnunarinnar sem hefur yfirumsjón með verndun fornleifa og byggingararfs á Íslandi. Þá var rætt um þær breytingar sem orðið hafa í starfsemi stofnunarinnar á undanförnum árum.
Á meðal fjölda þingmála sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hyggst leggja fram á vorþingi er frumvarp um breytingu á viðmiðunarártali vegna umsagnarskyldu Minjastofnunar Íslands um eldri hús. Um er að ræða hús og önnur mannvirki sem byggð voru eftir árið 1923 og njóta því ekki aldursfriðunar.
Í gildandi lögum miðast umsagnarskyldan við árabilið 1924-1940 og nær til tæplega 8400 húsa. Samkvæmt áformunum, sem leggja á fyrir þing á vorþingi, yrði árabilið stytt og síðara ártalinu breytt í 1930. Það ár er gjarnan talið marka endalok þess tímabils sem kennt er við steinsteypuklassík.
Breyting þessi myndi hafa áhrif á 4.941 hús og mannvirki á þann hátt að eigendur þeirra þyrftu ekki lengur að leita sérstakrar umsagnar Minjastofnunar Íslands vegna breytinga sem þeir hyggjast gera á húseignum sínum. Áfram yrði þó heimilt að leita slíkrar umsagnar, en ekki gilti lengur lagaskylda um slíkt.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Markmiðið er að lágmarka stjórnsýslubyrði, auka skilvirkni og tryggja að Minjastofnun geti einbeitt sér að verndun þeirra minja sem raunverulega er ástæða til að vernda. Þessi einfalda breyting er liður í miklu víðtækari aðgerðum sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur stendur fyrir þessa dagana um hagræðingu, einföldun stjórnsýslu og skarpari forgangsröðun við ráðstöfun opinbers fjár. Þar er öll starfsemi ríkisins undir.“