Hafþór Eide aðstoðar ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra
Hafþór Eide Hafþórsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra. Hann hefur þegar hafið störf.
Hafþór er viðskiptafræðingur, með B.Sc próf frá Háskólanum í Reykjavík ásamt því að hafa lokið prófi til verðbréfamiðlunar og diplómu í kínversku frá Háskóla Íslands.
Hafþór aðstoðaði Lilju um tveggja ára skeið í mennta- og menningarmálaráðuneytinu en undanfarið hefur hann sinnt ráðgjöf á sviði byggðaþróunar. Hann hefur einnig starfað í verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Arion banka, sem verkefnastjóri hjá Iceland Travel, á rekstrarsviði Air Atlanta, bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar og í mannauðs- og upplýsingateymi Alcoa Fjarðaáls. Þá stýrði hann sögusafninu Fransmenn á Íslandi á Fáskrúðsfirði í tvö sumur.
Hafþór hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn. Hefur hann meðal annars gengt embætti formanns Sambands ungra framsóknarmanna og verið einn af kosningastjórum flokksins í síðastliðnum tveimur Alþingiskosningum.