33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar
Skilgreining málefnasviðs
Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.
Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum
Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.
Heildargjöld málefnasviðs 33 Fjármagnskostnaður, ábyrgðir og lífeyrisskuldbindingar árið 2024 eru áætluð 172.327,4 m.kr. og aukast um 31.419,5 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023, eða sem svarar til 18,2%.
Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði.
Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda
Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.
33.10 Fjármagnskostnaður
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.
Helstu verkefni 2024 | Framkvæmdaraðili | Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Viðhalda sjálfbærni skulda ríkissjóðs | ||
Hagstæð fjármögnun ríkissjóðs með jöfnu afborgunarferli og lágmörkun áhættu. | Fjármála- og efnahagsráðuneyti | Innan ramma |
Uppbygging áhættustýringar fyrir ríkissjóð. | Fjármála- og efnahagsráðuneyti | Innan ramma |
Markmið 2: Lágmörkun fjármagnskostnaðar að teknu tilliti til áhættu | ||
Endurfjármögnun útistandandi skulda þegar tækifæri gefast á betri vaxtakjörum. | Fjármála- og efnahagsráðuneyti | Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 92.239,2 m.kr. og hækkar um 12.543,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum.
Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.
Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:
- Fjárheimild málaflokksins er hækkuð um 8.478,3 m.kr. vegna innlendra lána. Þar af hækka vextir af langtímalánum um 6.414,9 m.kr. og skammtímalánum um 2.063,4 m.kr.
- Vextir af erlendum lánum hækka um 4.737,8 m.kr. á milli ára vegna forsendu um nýja erlenda lántöku á hærri vöxtum en þeir erlendu skuldabréfaflokkar ríkissjóðs sem nú eru útistandandi bera.
- Verðbætur á höfuðstól verðtryggðra lána ríkissjóðs lækka um 672,6 m.kr. frá fjárlögum ársins 2023.
33.20 Ríkisábyrgðir
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Draga úr ríkisábyrgðum |
||
Endurlána ríkisfyrirtækjum og sjóðum í stað þess að heimila lántökur með ríkisábyrgð. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 110 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum.
33.30 Lífeyrisskuldbindingar
Starfsemi málaflokksins er á ábyrgð fjármála- og efnahagsráðherra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.
Helstu verkefni 2024 |
Framkvæmdaraðili |
Breyting á fjárveitingu til verkefnis |
Markmið 1: Minnka ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar | ||
Ríkissjóður greiði 8 ma.kr. inn á lífeyrisskuldbindingar sínar. |
Fjármála- og efnahagsráðuneyti |
Innan ramma |
Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 79.978,2 m.kr. og hækkar um 18.876 m.kr. frá gildandi fjárlögum. Á árinu 2022 hækkaði hrein lífeyrisskuldbinding ríkissjóðs um 78.552 m.kr. vegna verðbólgu, launahækkana og neikvæðrar ávöxtunar. Gert er ráð fyrir að heildarlífeyrisskuldbinding ríkissjóðs vegna B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins nái hámarki um þessar mundir en fari svo lækkandi sem leiðir til lækkandi gjaldfærslu að jafnaði á næstu árum.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.