Hoppa yfir valmynd

8 Fjárreiður ríkisaðila í B-hluta

Flokkun ríkisaðila var breytt í fjárlögum fyrir árið 2022 til samræmis við breytingar sem gerðar voru á flokkun á starfsemi þeirra í lögum um opinber fjármál. Þær breytingar byggðust á endurskoðun Hagstofu Íslands á flokkun tiltekinna ríkisaðila/stofnanaeininga. Hluti af sjóð­um sem töldust áður til B-hluta flokkast nú undir A2-hluta. Enn fremur voru gerðar breytingar á skilgreiningu á B-hluta:

B-hluti. Til B-hluta teljast önnur fyrirtæki og lánastofnanir sem eru undir beinni stjórn ríkisins og rekin eru á ábyrgð ríkissjóðs og ekki teljast til A-hluta. Þessir aðilar starfa á markaði og standa að stærstum hluta undir kostnaði við starfsemi sína með tekjum af sölu á vöru eða þjónustu til almennings og fyrirtækja.

Eftir breytingar á flokkun ríkisaðila teljast nú einungis þrjú fyrirtæki og tveir sjóðir til B-hluta. Það eru ÁTVR, Happdrætti Háskóla Íslands, Íslenskar orkurannsóknir, Nýsköpunar­sjóður atvinnulífsins og Kría, sprota- og nýsköpunarsjóður, en nýr sjóður, Nýsköpunar­sjóður­inn Kría, tekur við af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins og Kríu, sprota- og nýsköpunarsjóði, í byrjun árs 2025. Framsetning á fjárreiðum aðila í B-hluta er eins og í reikningsskilum fyrir­tækja í sambæri­legum rekstri og reikningsskil þeirra skulu uppfylla kröfur laga um ársreikn­inga.

Tafla 8.1 sýnir nokkrar lykilstærðir úr fjárreiðum B-hluta aðila sem byggjast á fjárhags­áætlunum þeirra fyrir árið 2025. Arðgreiðslur B-hluta aðila í ríkissjóð eru áætlaðar 750 m.kr. en einungis Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins greiðir arð í ríkissjóð. ÁTVR gerir ráð fyrir að hagnaður ársins 2025 verði um 234 m.kr. samanborið við 330 m.kr. á árinu 2024. Áætlað er að Happdrætti Háskóla Íslands greiði 3.602 m.kr. framlag á næsta ári sem renni til framkvæmda og viðhalds fasteigna Háskóla Íslands.

Rekstrargrunnur: Tafla 8.1 Áætlaðar lykilstærðir B-hluta ríkisaðila fyrir árið 2025

Í töflu 8.2 er samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit fyrir ríkisaðila í B-hluta í heild. Gert er ráð fyrir að samanlagður hagnaður þessara aðila af reglulegri starfsemi dragist verulega saman milli ára, úr tæplega 2,5 ma.kr. í rúmlega 1,1 ma.kr., sem skýrist af breytingum í rekstri Happdrættis Háskóla Íslands á árinu 2025. ÁTVR gerir ráð fyrir að hagnaður lækki um tæplega 30% milli áranna 2024 og 2025. Þegar tekið hefur verið tillit til arðgreiðslna ÁTVR til ríkis­sjóðs á árinu 2025, að fjárhæð 750 m.kr. samanborið við 250 m.kr. árið 2024, og framlags Happdrættis Háskóla Íslands til Háskóla Íslands, að fjárhæð 3.602 m.kr. árið 2025 samanborið við 1.638 m.kr. árið 2024, er niðurstaðan sú að talsvert gengur á handbært fé á árinu 2025.

Rekstrargrunnur: Tafla 8.2 Samandregið rekstrar- og sjóðstreymisyfirlit B-hluta ríkisaðila

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum