Hoppa yfir valmynd

18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Mennta- og barnamálaráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð menningar- og viðskiptaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Það skiptist í fimm málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 18 Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál árið 2025 eru áætluð 24.075,4 m.kr. og aukast um 1.333,4 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 6,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 2.253,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 10,3%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál

18.10 Safnamál

Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkisins, sveitarfélaga, sjálfseignarstofnana og annarra aðila. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Að almenningur hafi betri aðgang að menningar- og náttúruarfi þjóðarinnar

Unnið að stefnumótun um rafræna langtímavörslu skjala.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Hugað að auknu samstarfi og/eða sameiningu safna.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Vinna að uppbyggingu nýs sýningar­húsnæðis fyrir Náttúruminjasafn Íslands.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti og Náttúruminjasafn Íslands

Innan ramma

Áframhaldandi uppbygging menningarhúsa á landsbyggðinni, efling og uppbygging sögustaða með hliðsjón af ferðamálastefnu og tillögu til þingsályktunar þar að lútandi.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Frumathugun í húsnæðismálum Listasafns Íslands.

Menningar- og viðskiptaráðuneytiog Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir

Innan ramma

Markmið 2: Efla vernd á menningararfi þjóðarinnar í samræmi við alþjóðlegar kröfur

Vinna samkvæmt áætlun um uppbyggingu og endurnýjun varðveislurýma fyrir safnkost í ríkiseigu.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Stuðningur vegna reksturs varðveislu­húsnæðis Þjóðskjalasafns Íslands og kaupa á búnaði.

Þjóðskjalasafn Íslands

180 m.kr.

Innleiðing á viðbragðsáætlunum safna vegna loftslags- og náttúruvár.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Efla skráningu og rannsóknir safnkosts

Meta stöðu skráninga og stafvæðingar safnkosts með hliðsjón af forgangsröðun stofnana og aðgengi almennings.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 6.115,4 m.kr. og lækkar um 29,9 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 311,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 180 m.kr. vegna nýs varðveisluhúsnæðis Þjóðskjalasafns Íslands. Framlagið skiptist annars vegar í 80 m.kr. vegna húsaleigu á varðveisluhúsnæðinu og hins vegar í 100 m.kr. tímabundið framlag til eins árs til kaupa á hillukerfum fyrir varðveisluhúsnæði að Sundaborg 11–13 sem tekið er á leigu vegna aukningar í skjalaskilum hjá skilaskyldum stofnunum.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 10 m.kr. vegna framlags til Kvik­myndasafns Íslands í tengslum við stafvæðingu safnsins.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 60 m.kr. þar sem tímabundið framlag vegna framkvæmdaverkefna gengur til baka. Framlagið er millifært af málaflokki 18.20 Menningarstofnanir yfir á málaflokk 18.10 Safnamál.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 80,1 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
  5. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 35 m.kr. þar sem tímabundin framlög ganga til baka. Framlögin komu af tíma­bundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
  6. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 55 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd safnamálum falla niður.
  7. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 104,8 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.

18.20 Menningarstofnanir

Starfsemi málaflokksins nær yfir opinberar stofnanir á sviði lista og menningar, s.s. Þjóðleikhúsið, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslenska dansflokkinn, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Minjastofnun Íslands. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efla aðgengi og auka aðsókn að menningarstofnunum

Bætt aðgengi að íslenskum kvikmyndaarfi með samvinnu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Unnið að aukinni samþættingu barnamenningar við starf menningarstofnana og miðstöðva listgreina með hliðsjón af þingsályktun um eflingu barnamenningar.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

 

Markmið 2: Vernda menningararf þjóðarinnar með markvissari hætti

Efla skráningu menningarminja í landinu, bæði út frá skil­greindum forgangssvæðum og áherslusvæðum, þ.m.t. svæða sem eru utan skráningarskyldra svæða sveitarfélaga vegna skipulagsgerðar, þjóðlendna og friðlýstra svæða.

Minjastofnun Íslands

Innan ramma

Efla tækniinnviði, upplýsingaveitur og miðlun gagna á sviði skráningar menningarminja, þ.m.t. gagnagrunn.

Minjastofnun Íslands

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 8.704,1 m.kr. og hækkar um 143,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 446,9 m.kr.

Ekki er um teljandi breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 75 m.kr. vegna stofnunar þjóðar­óperu, sbr. frumvarp til laga um breytingar á lögum um sviðslistir, nr. 165/2019.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 20 m.kr. vegna framlags til Kvik­myndamiðstöðvar Íslands vegna áframhaldandi verkefna samkvæmt kvikmyndastefnu.
  3. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 268,9 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 60 m.kr. þar sem tímabundið framlag til eins árs vegna framkvæmdaverkefna gengur til baka. Framlagið er millifært af málaflokki 18.20 Menningarstofnanir yfir á málaflokk 18.10 Safnamál.
  5. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 40 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd menningarstofnunum falla niður.
  6. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 50 m.kr. þar sem tímabundið framlag gengur til baka. Framlagið kom af tímabundnu fjárfestingar­átaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
  7. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 88,3 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.

18.30 Menningarsjóðir

Starfsemi málaflokksins felst í fjárveitingum ríkisins sem er úthlutað í gegnum lögbundna sjóði. Helstu sjóðir málaflokksins eru Fornminjasjóður, Húsafriðunarsjóður, launasjóðir lista­manna, Kvikmyndasjóður, Myndlistarsjóður, Bókasafnssjóður höfunda, Stuðningur við útgáfu bóka á íslensku, Starfsemi áhugaleikfélaga, Starfsemi atvinnuleikhópa (sviðslistasjóður), Tónlistarsjóður, Barnamenningarsjóður Íslands, Bókasafnasjóður og heiðurslaun listamanna. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efla stöðu íslenskrar tungu í samfélaginu

Unnið samkvæmt aðgerðaáætlunum í málefnum íslenskrar tungu og táknmáls.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Hækkun til starfslaunasjóða listamanna og tveir nýir starfslaunasjóðir verða að veruleika, launasjóður kvikmyndahöfunda og Vegsemd, fyrir listamenn 67 ára og eldri.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

125 m.kr.

Hefja innleiðingu á stefnum í málefnum bókmennta og sviðslista.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Unnið samkvæmt stefnumótun listgreina; kvikmynda-, myndlistar- og tónlistarstefnu.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Hagnýting máltæknilausna fyrir almenning

Máltækniáætlun 2 hrint í framkvæmd.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Tryggja tölfræði og kyngreind gögn um menningarsjóði

Skilgreining og birting lykiltalna um menningarstarf og skapandi greinar.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti, Hagstofa Íslands og Rannsóknasetur skapandi greina

Innan ramma

Unnið að aukinni skilvirkni sjóðakerfis lista, menningar og skapandi greina.

Menningar- og viðskiptaráðuneyti

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 5.055,6 m.kr. og lækkar um 396,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 97,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 125 m.kr. til hækkunar á starfs­launum listamanna. Breytingar voru gerðar á lögum um listamannalaun nr. 57/2009, í samræmi við áherslur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin varanlega um 170 m.kr. til að efla Kvikmyndasjóð, Myndlistarsjóð, Sviðslistasjóð og Bókasafnssjóð höfunda.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin tímabundið til eins árs um 48 m.kr. vegna stofnunar Tónlistarmiðstöðvar Íslands og eflingar sjóða þar undir í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og Menningarsókn – aðgerðaáætlun um listir og menningu til 2030.
  4. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 153,2 m.kr. þar sem tímabundin framlög ganga til baka. Framlögin komu af tímabundnu fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar til menningarmála.
  5. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 13 m.kr. í samræmi við áætlun um rekstrartekjur ríkisaðila.
  6. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 500 m.kr. vegna niðurfellingar tímabundins framlags til menningarmála. Framlagið var til þriggja ára, þ.e. 2021–2023, en hluti þess var færður til ársins 2024 vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar í júní 2022 til að draga úr þenslu og bæta afkomu.  
  7. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 119,7 m.kr. þar sem tímabundin framlög samkvæmt tilmælum fjárlaganefndar í ýmis verkefni tengd menningarmálum falla niður.
  8. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 254,4 m.kr. sem er skipt hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokksins.

18.40 Íþrótta- og æskulýðsmál

Starfsemi í málaflokknum er að mestu leyti á hendi frjálsra félaga og félagasamtaka sem og sveitarfélaga, í samstarfi við ríkið. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2023 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Bæta umgjörð og auka gæði í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi

Unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvanga í frjálsíþróttum og knattspyrnu.

Mennta- og barnamála­ráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, ÍSÍ og sérsambönd

Innan ramma

Unnið að undirbúningi framkvæmda vegna þjóðarleikvangs (Þjóðarhallar) fyrir inniíþróttir.

Mennta- og barnamála­ráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, forsætisráðuneyti, ÍSÍ og sérsambönd

1.500 m.kr.

Fylgjast með þátttöku barna með annað móðurmál en íslensku í íþrótta- og æskulýðsstarfi í samvinnu við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands og setja áherslur í samninga við íþrótta­hreyfinguna og sjóði sem stuðla að aukinni þátttöku iðkenda í þessum hópi.

Mennta- og barnarmála­ráðuneyti, Mennta­vísindasvið HÍ og íþrótta- og æskulýðsfélög

Innan ramma

Innleiðing aðgerðaáætlunar í tómstunda- og félagsstarfi barna og ungmenna.

Mennta- og barnamála­ráðuneyti, æskulýðsráð, samband sveitarfélaga og umboðsmaður barna

Innan ramma

Efla starfsemi samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs.

Mennta- og barnamála­ráðuneyti

 

Innan ramma

Efla almenningsíþróttastarf íþróttahreyfingarinnar, s.s. íþróttir eldri borgara.

Mennta- og barnamála­ráðuneytið

Innan ramma

Markmið 2: Efla umgjörð og stuðning við afreksíþróttafólk

Þróa samstarfsvettvang gegn hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum í samræmi við alþjóðasamning Evrópuráðsins. Samlegð við starfsemi Lyfjaeftirlits Íslands verði skoðuð.

Mennta- og barnamála­ráðuneyti, dómsmála­ráðuneyti, ríkislögreglu­stjóri og hagsmunaaðilar

Innan ramma

Efla heildarumgjörð afreksíþrótta og þ.m.t. að vinna að réttindamálum afreksfólks í íþróttum.

Mennta- og barnamálaráðuneyti, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands

250 m.kr.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 3.130,7 m.kr. og hækkar um 1.589 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 16,7 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.500 m.kr. til framkvæmda við Þjóðarhöll.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 250 m.kr. til þess að fylgja eftir aðgerðum í stjórnarsáttmála tengdum afreksíþróttum. Fjárheimildin er flutt af málaflokki 20.10 Framhaldsskólar.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 146 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Helstu framlög sem falla niður eru 20 m.kr. framlag til uppbyggingar á landsmóts­svæði fyrir landsmót hestamanna 2024 og vegna annarra tímabundinna framlaga frá fjárlaganefnd í ýmis íþróttatengd verkefni sem eru að falla niður.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 15 m.kr. og lækkar fjárheimild málaflokksins sem því nemur. Skiptist aðhaldið niður á milli verkefna og sjóða innan málaflokksins.

18.50 Stjórnsýsla menningar og viðskipta

Starfsemi málaflokksins er í höndum menningar- og viðskiptaráðuneytis. Nánar er fjallað um málaflokkinn i fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 1.069,6 m.kr. og hækkar um 27,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 47,7 m.kr.

Ekki er um breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 49 m.kr. til að efla og styrkja stjórnsýslu ráðuneytis menningar, ferðamála og viðskipta.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 11,8 m.kr. sem fellur að mestu leyti á menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum