Hoppa yfir valmynd

12 Landbúnaður

Matvælaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð matvælaráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Landbúnaður

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 12 Landbúnaður árið 2025 eru áætluð 24.351,4 m.kr. og aukast um 14,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 0,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 961,1 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 4,1%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Landbúnaður

12.10 Stjórnun landbúnaðarmála

Starfsemi málaflokksins varðar stjórnsýslu Matvælastofnunar, nýtingu auðlinda lands, vöktun og eftirlit stjórnvalda. Matvælastofnun sinnir ýmsum stjórnsýsluverkefnum, eftirliti, fræðslu og þjónustu við landbúnað, sjávarútveg, fiskeldi, fyrirtæki og neytendur í þeim tilgangi að stuðla að heilbrigði og velferð dýra, heilbrigði plantna og öryggi, heilnæmi og gæðum mat­væla. Búvörusamningar móta að miklu leyti regluverk og stuðningsaðgerðir stjórnvalda í þágu landbúnaðar og hafa þar með talsverð áhrif á starfsskilyrði greinarinnar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Efla fæðuöryggi og standa vörð um heilbrigði plantna og dýra, velferð dýra og öryggi matvæla

Efling kornræktar til aukningar á inn­lendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis, sbr. gildandi fjármálaáætlun.

Matvælaráðuneyti

180 m.kr.

Innleiðing aðgerðaáætlana í kjölfar samþykktrar landbúnaðarstefnu og matvælastefnu.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing verndandi arfgerða gegn riðuveiki í íslenska sauðfjárstofninum.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Heildstæð stefnumótun um dýravelferð og -heilbrigði og endurskoðun viðeigandi laga.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Styrking eftirlits lagareldis.

Matvælastofnun

50 m.kr.

Innleiðingar EES-reglugerða um öryggi matvæla og dýraheilbrigði.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Gerð verkefnaáætlunar fyrir söfnunarkerfi dýraleifa (dýrahræ og aukaafurðir dýra sem ekki er ætlað til manneldis), ásamt útboði og innleiðingu kerfisins.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 2: Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna landbúnaðar og auka bindingu

Efling rannsókna og bætt þekking á lofts­lagsáhrifum íslensks landbúnaðar í sam­ræmi við alþjóðlegar gæðakröfur um losunarbókhald.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Innleiðing aðgerða í landbúnaði skv. endurskoðaðri aðgerðaáætlun í lofts­lagsmálum.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

 

Stuðningur við þróun gæðaviðmiða um framleiðslu vottaðra kolefniseininga.

Matvælaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbæra land­nýtingu og nýsköpun að leiðarljósi

Heildarendurskoðun á stuðningskerfi í landbúnaði.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Efling lífrænnar framleiðslu skv. fyrir­liggjandi aðgerðaáætlun.

Matvælaráðuneyti

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 22.388,2 m.kr. og lækkar um 91 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 854,3 m.kr.

Rekstrarframlög lækka um nærri 154 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum en þar munar mest um niðurfellingu á sérstöku 200 m.kr. tímabundnu framlagi í landbúnaði. Að örðu leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um samtals 180 m.kr. til aðgerða sem eiga að stuðla að aukinni innlendri framleiðslu á korni til fóðurs og til manneldis. Kemur framlagið til viðbótar 198 m.kr. framlagi sem veitt var til verkefnisins í fjárlögum 2024. Gert er ráð fyrir að fjármagnið skiptist á milli verkefna til fjárfestingarstuðnings og innviða­uppbyggingar í kornrækt annars vegar og beins stuðnings við kornframleiðslu hins vegar. Fyrri hluta tímabilsins verði megináhersla lögð á kynbótastarf og innviða­uppbyggingu og á síðari hluta verði innleiddur beinn stuðningur við kornframleiðslu, í samræmi við áherslur sem birtast í aðgerðaáætlun Landbúnaðarháskóla Íslands um aukna kornrækt, Bleikir akrar. Verkefnið er í samræmi við markmið 1 í málaflokki 12.10.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 50 m.kr. til að auka eftirlit Matvælastofnunar með sjókvíaeldi og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirliti sjókvíaeldisfyrirtækja. Kemur það framlag til viðbótar 126 m.kr. framlagi sem veitt var í fjárlögum 2024 til verkefnisins. Tillagan er hluti af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við áskorunum í sjávarútvegi og fiskeldi með því að efla stjórnsýslulega umgjörð þessara málaflokka og stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun fyrir íslenskt þjóðarbú til framtíðar. Gert er ráð fyrir að um 2/3 hlutar fjármagnsins fari í að fjölga stöðugildum í fiskeldisdeild Matvælastofnunar en að um 1/3 fari til upp­byggingar, viðhalds og reksturs á búnaði. Verkefnið er í samræmi við markmið 1 í málaflokki 13.10.
  3. Gert er ráð fyrir að 200 m.kr. tímabundið framlag falli niður sem veitt var í fjárlögum 2024 til sérstakra aðgerða í landbúnaði. Annars vegar var um að ræða 100 m.kr. í verkefni sem stuðla eiga að aukinni rekstrarhagkvæmni í landbúnaði með hliðsjón af áherslum stjórnvalda ásamt vinnu við heildarstefnumótun fyrir stuðningskerfi landbúnaðar í samráði við bændur með hliðsjón af áherslum landbúnaðarstefnu. Hins vegar var um að ræða 100 m.kr. sem ráðstafað var í almennan stuðning við bændur eftir gildandi búvörusamningum í tengslum við endurskoðun samninga milli stjórn­valda og Bændasamtaka Íslands.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 126,2 m.kr. að raungildi í samræmi við ákvæði samninga um starfsskilyrði í nautgriparækt, sauðfjárrækt og garðyrkju og ramma­samnings um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins. Á móti þessari lækkun er gert ráð fyrir samtals 710,8 m.kr. hækkun til fyrrgreindra búvörusamninga í samræmi við verðlagsforsendur frumvarpsins.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 22,7 m.kr.

12.20 Rannsóknir, þróun og nýsköpun í landbúnaðarmálum

Starfsemi málaflokksins er í höndum matvælaráðuneytisins. Nánar er fjallað um mála­flokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, mark­mið og mælikvarða um árangur o.fl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 870,1 m.kr. og hækkar um 100,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 25,1 m.kr.

Rekstrarframlög hækka um 103 m.kr. að frátöldum launa- og verðlagsbreytingum sem skýrist fyrst og fremst af 96 m.kr. viðbótarframlagi til Matís. Að öðru leyti er ekki um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar tímabundið um 96 m.kr. vegna þjónustusamnings við Matís en gert er ráð fyrir að fjármunirnir verði skilyrtir sem mótframlag við styrki úr erlendum samkeppnissjóðum. Um helmingur tekna Matís í dag kemur með styrkjum úr samkeppnissjóðum, bæði innlendum og erlendum. Þetta er mikil breyting frá því sem var við stofnun Matís (2007) en þá náðu styrkir úr samkeppnissjóðum aðeins um 20% af tekjum. Mikilvægt er að styrkja getu Matís til að til að greiða fastan kostnað á móti fengnum styrkjum í erlendum samkeppnissjóðum og er framlagi þessu ætlað að mæta því.
  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 13 m.kr. vegna samsvarandi hækkunar almenns útgjaldasvigrúms.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 12,2 m.kr.

12.60 Stjórnsýsla matvælaráðuneytisins

Undir málaflokkinn heyrir stjórnsýsla matvælaráðuneytisins. Nánar er fjallað um mála­flokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 1.093,1 m.kr. og hækkar um 5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 66,9 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 13 m.kr. vegna samsvarandi hækkunar almenns útgjaldasvigrúms.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 8 m.kr.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum