Hoppa yfir valmynd

24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Heilbrigðisráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð heilbrigðisráðherra. Það skiptist í fjóra mála­flokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 24 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa árið 2025 eru áætluð 96.049,6 m.kr. og aukast um 2.270,8 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 2,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 7.001,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 7,9%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa

24.10 Heilsugæsla

Starfsemi málaflokksins er í höndum heilbrigðisráðuneytis, Heilsugæslu höfuðborgar­svæð­isins, heilsugæslusviða heilbrigðisstofnana heilbrigðisumdæma og einkarekinna heilsu­gæslu­stöðva. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðar­skiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Skilvirkari þjónusta fyrir fólk sem leitar til heilsugæslu

Nýta niðurstöður þjónustukönnunar til að auka skilvirkni heilbrigðis­þjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti og heilsugæslur um land allt

Innan ramma

Auka þverfaglegt samstarf og teymisvinnu í heilsugæslu.

Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og heilsugæslur um allt land

Innan ramma

Markmið 2: Aðgengilegri þjónusta fyrir fólk sem leitar til heilsugæslu

Undirbúa byggingu á seinni heilsugæslustöðinni á Akureyri í samræmi við þarfagreiningu.*

Heilbrigðisráðuneyti

-521,8 m.kr.

Undirbúa stækkun á þremur heilsu­gæslustöðvum á höfuðborgar­svæðinu; Miðbær, Garðabær, Hafnarfjörður.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Undirbúa byggingu á heilsugæslu­stöð í Innri-Njarðvík.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Styrkja vegvísun í heilbrigðis­kerfinu með samningum um Upplýsingamiðstöð og nýtingu fjarheilbrigðisþjónustu.

Heilbrigðisráðuneyti og

Sjúkratryggingar Íslands

 

Innan ramma

Markmið 3: Að auka ánægju skjólstæðinga með þjónustu á heilsugæslusvæðinu

Uppfærsla þjónustukönnunar til hagnýtingar í stefnumótun þjónustunnar.

Heilbrigðisráðuneyti og fjármálaráðuneyti

Innan ramma

Samþætting heilbrigðis- og félags­þjónustu í verkefninu „Gott að eldast“.

Heilbrigðisráðuneyti

Innan ramma

Markmið 4: Skjólstæðingar noti heilsuvera.is í meira mæli til að bóka tíma á heilsugæslu

Að jafna aðgengi notenda sem bóka tíma á heilsugæslu með samningum um Upplýsinga­miðstöð.

Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

*Fjárveitingar til verkefna geta verið breytilegar á milli ára. Sem dæmi getur lækkun fjárveitingar endur­speglað að tímabundin fjárveiting fellur niður, eða lækkun í samræmi við áætlun eins og endurspeglast í fjármálaáætlun.

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 45.696,3 m.kr. og lækkar um 254,5 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlags­breytingum en þær nema 2.663,3 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 767 m.kr.
  2. Fjárframlög til málaflokksins hækka um 100 m.kr. til að mæta áskorunum sem felast í öldrun þjóðar­innar, vinna niður biðlista o.fl.
  3. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 100 m.kr. til að efla geðheilbrigðisþjónustu í samræmi við áætlun og geðheilbrigðisstefnu.
  4. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 617,8 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður.
  5. Útgjaldaheimild málaflokksins hækkar um 319,6 m.kr. vegna samsvarandi breytinga á sértekjum.
  6. Millifærðar eru 885 m.kr. af fjárheimild málaflokksins vegna aukinnar greiðslu­þátt­töku í heilbrigðiskerfinu sem dreifist á aðra málaflokka.
  7. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 38,3 m.kr.

24.20 Sérfræðiþjónusta og hjúkrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjálfstætt starfandi sérgreinalækna, tannlækna, hjúkr­unar­­­­fræðinga, sálfræðinga og ljósmæðra. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1:Að efla þróun á starfsemi sérgreinalækna utan sjúkrahúsa

Unnið að þróun á þjónustu sérgreinalækna

í gegnum samstarfssamning SÍ og LÍ. Sér­staklega er horft til verklags í tengslum við þverfagleg teymi og forgangsröðun þjónustu m.t.t. þjónustuþarfar á landsbyggðinni.

Sjúkratryggingar Íslandsog Læknafélag Íslands

Innan ramma

Markmið 2: Efling fæðingarþjónustu sem miðar að eðlilegu fæðingarferli

Styðja við fæðingaþjónustu á 1. eða 2. þjónustustigi.

Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 35.455,9 m.kr. og hækkar um 2.176,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.480,4 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Framlög eru hækkuð um 800 m.kr. til að mæta eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu sem er umfram það sem áður hafði verið gert ráð fyrir í áætlunum um þróun útgjalda til heilbrigðisþjónustu sjúkratrygginga.
  2. Framlög eru hækkuð um 575 m.kr. til að lækka greiðsluþátttöku í tannlækningum sjúkratrygginga.
  3. Framlög eru hækkuð um alls 635,7 m.kr. til að mæta raunvexti innan málaflokksins.
  4. Framlög hækka um 90 m.kr. til að lækka greiðsluþátttöku vegna brottnáms brjóstapúða af læknisfræðilegum ástæðum.
  5. Framlög eru hækkuð um 76 m.kr. til að mæta auknum kostnaði við uppsetningu frystra fósturvísa í tengslum við krabbameinsmeðferð.

24.30 Sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og talþjálfun

Starfsemi málaflokksins er í höndum sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og talmeinafræðinga. Einnig fellur Heyrnar- og talmeinastöð Íslands undir málaflokkinn. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Biðtími eftir þjónustu sjúkraþjálfara er <30 dagar skv. miðlægum biðlista

Þróa ferli til að bregðast við ef markmið um

tímanlega þjónustu nást ekki.

Heilbrigðisráðuneyti og Sjúkratryggingar Íslands

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 10.001 m.kr. og hækkar um  168,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 383,6 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur á veittri þjónustu innan málaflokksins er 171,2 m.kr.
  2. Hlutdeild málaflokksins í afkomubætandi ráðstöfunum er 2,8 m.kr.

24.40 Sjúkraflutningar

Starfsemi málaflokksins er í höndum rekstraraðila sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Auk þess heyra réttindagreiðslur sjúkratrygginga til sjúkraflutninga og ferða innan lands til málaflokksins. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Skjótari viðbrögð við bráðaútköllum í dreifbýli

Endurskipuleggja bráðaþjónustu og sjúkraflutninga samkvæmt aðgerðaáætlun til ársins 2025 og

tillögum viðbragðsteymis.

Heilbrigðisráðuneyti, LSH, heilbrigðisstofnanir og sjúkraflutningsaðilar

Innan ramma

Markmið 2: Betri faglegur stuðningur á vettvangi

Ljúka innleiðingu samræmdrar rafrænnar

skráningar í sjúkrabílum.

Embætti landlæknis og sjúkraflutningsaðilar

Innan ramma

Vinna að endurskoðun námskrár sjúkraflutninga­­náms m.t.t. flutnings þess inn í almenna skólakerfið.

Heilbrigðisráðuneyti, mennta- og barnamála­ráðuneyti, embætti land­læknis og sjúkraflutnings­aðilar

Innan ramma

Auka þjálfunarmöguleika sjúkraflutningafólks í dreifbýli hjá stærri sjúkraflutningsaðilum.

LSH, embætti landlæknis og sjúkraflutningsaðilar

Innan ramma

Tryggja faglegan sérhæfðan stuðning á vettvangi með fjarheilbrigðislausnum.

LSH, Neyðarlínan og sjúkraflutningsaðilar

Innan ramma

Markmið 3: Aukin þjónusta á vettvangi

Vinna að samræmingu á starfi vettvangsliða á landsvísu, sér í lagi í dreifðari eða einangraðri byggðum.

Heilbrigðisráðuneyti og Neyðarlínan

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.896,4 m.kr. og hækkar um 180,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 203,2 m.kr.

Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Reiknaður raunvöxtur í málaflokknum er 84 m.kr.
  2. Framlag í varasjóð málaflokksins, 3,8 m.kr., er felld niður tímabundið vegna sértækra aðhaldsaðgerða.
  3. Framlög til málaflokksins eru hækkuð um alls 100 m.kr. til að fjölga ferðum sjúklinga til að sækja heilbrigðisþjónustu úr tveimur í fjórar.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum