Hoppa yfir valmynd

28 Málefni aldraðra

Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð félags- og vinnumarkaðsráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðar­sýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Málefni aldraðra

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefna­sviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 28 Málefni aldraðra árið 2025 eru áætluð 121.544,9 m.kr. og lækka um 1.328 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 1,1%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.682,4 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 3,1%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs. Sérstök athygli er vakin á því að í útgjaldabrúnni kemur endurmat á útgjöldum ríkissjóðs vegna greiðslna ellilífeyris fram sem aðhaldsaðgerð. Ekki er um eiginlega aðhaldsaðgerð að ræða í þeim skilningi að verið sé að skerða greiðslur eða réttindi lífeyrisþega heldur er eingöngu verið að endurmeta og aðlaga fjárheimildir að raunútgjöldum á málefnasviðinu. Afgangur hefur verið á málefnasviðinu allt frá árinu 2018 vegna aukinna tekna ellilífeyrisþega. Við það skapast svigrúm sem er m.a. nýtt til að hækka almennt frítekjumark ellilífeyris um 46%.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Málefni aldraðra

28.10 Bætur skv. lögum um almannatryggingar, lífeyrir aldraðra

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem annast framkvæmd með greiðslum samkvæmt lögum um almannatryggingar en það eru greiðslur ellilífeyris og vasa­penings ellilífeyrisþega. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í fjármálaáætlun 2025–2029 var umfjöllun um málaflokka 28.1 og 28.2 sameinuð. Það á einnig við um markmið og árangursmælikvarða. Tafla með helstu verkefnum hér á eftir tekur tillit til helstu verkefna sameinaðra málaflokka.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Hækka heildartekjur ellilífeyrisþega

Vinna úr tillögum starfshóps um afkomu­öryggi eldra fólks, aukinn sveigjanleika í starfslokum og úrbætur í húsnæðismálum í því skyni að bæta fjárhagslega stöðu aldraðra.

Félags- og vinnumarkaðs­ráðuneytið

Innan ramma

Vinna með hagaðilum að frekari grein­ingum á lægstu tekjutíundunum í því skyni að setja megi fram aðgerðir til að bæta kjör þeirra.

Félags- og vinnumarkaðs­ráðuneytið

Innan ramma

Hækka almennt frítekjumark ellilífeyrisþega.

Félags- og vinnumarkaðs­ráðuneytið

2.700 m.kr.

Markmið 2: Aukin atvinnuþátttaka aldraðra

Vinna úr tillögum starfshóps um afkomu­öryggi eldra fólks, aukinn sveigjanleika í starfslokum og úrbætur í húsnæðismálum í því skyni að bæta fjárhagslega stöðu aldraðra.

Félags- og vinnumarkaðs­ráðuneytið

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 110.466,8 m.kr. og lækkar um 1.575 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 4.554,3 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 2,7 ma.kr. vegna hækkunar á almennu frítekjumarki ellilífeyris, sbr. markmið nr. 1.
  2. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 3.225 m.kr. vegna reiknaðs kerfislægs vaxtar.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 7,5 ma.kr. sem er endurmat á greiðslum til ellilífeyris út af auknum tekjum ellilífeyrisþega síðustu ár.
  4. Bætur almannatrygginga eru undanskildar almennri aðhaldskröfu.

28.20 Bætur skv. lögum um félagslega aðstoð, öldrun

Starfsemi málaflokksins er í höndum Tryggingastofnunar sem ber ábyrgð á framkvæmd greiðslna málaflokksins. Samkvæmt lögum um félagslega aðstoð er heimilt að greiða ýmiss konar styrki og uppbætur eins og heimilisuppbót, uppbót á lífeyri vegna tiltekins kostnaðar lífeyrisþega og uppbætur og styrki vegna bifreiðakaupa og reksturs bifreiða. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri. Í fjármálaáætlun 2025–2029 var umfjöllun um málaflokka 28.1 og 28.2 sameinuð og tafla í málaflokki hér að framan tekur til aðgerða/verkefna vegna sameinaðar umfjöllunar vegna þessa tveggja málaflokka.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 10.527,7 m.kr. og hækkar um 247 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 434 m.kr.

Ekki eru breytingar á hagrænni skiptingu málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 247 m.kr. vegna reiknaðs kerfislægs vaxtar.
  2. Bætur almannatrygginga eru undanskildar almennri aðhaldskröfu.

28.30 Þjónusta við aldraða og aðrar greiðslur

Undir þjónustu við aldraða og aðrar greiðslur, ótaldar, falla greiðslur samkvæmt lögum um eftirlaun til aldraðra, nr. 113/1994, og greiðslur samkvæmt lögum um félagslegan viðbótar­stuðning við aldraða, nr. 74/2020. Með síðarnefndu lögunum hefur verið komið til móts við þann hóp aldraðra sem ekki hefur áunnið sér full réttindi í almannatryggingum. Líkt og gildir um málaflokk 28.20 ber Tryggingastofnun ríkisins ábyrgð á framkvæmd greiðslna sem falla undir málaflokkinn.

Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri en eðli málaflokksins er með þeim hætti að ekki voru mótuð markmið eða mælikvarðar um árangur.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 550,4 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 22,1 m.kr. Bætur almannatrygginga eru undanskildar almennri aðhaldskröfu.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum