Hoppa yfir valmynd

02 Dómstólar

Dómsmálaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fjóra mála­flokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Dómstólar

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 02 Dómstólar árið 2025 eru áætluð 4.273,4 m.kr. og lækka um 10,6 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 0,3%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 228,6 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 5,7%.

Myndin endurspeglar stefnumótun málefnasviðsins en getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að ein­hverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Dómstólar

02.10 Hæstiréttur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Hæstaréttar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjár­málaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Verkefni í þessum málaflokki má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 558,8 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 30,6 m.kr.

02.20 Héraðsdómstólar

Starfsemi málaflokksins er í höndum héraðsdómstólanna. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Verkefni í þessum málaflokki má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 2.311,5 m.kr. og lækkar um 10,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 136,3 m.kr. Breytingin felst í hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefna­sviðsins.

02.30 Landsréttur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Landsréttar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Verkefni í þessum málaflokki má finna undir málaflokki 02.40 Dómstólasýslan. Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 955,9 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 49,1 m.kr.

02.40 Dómstólasýslan

Starfsemi málaflokksins er í höndum Dómstólasýslunnar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins. 

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Réttlát og opinber málsmeðferð

Samþætting málaskrárkerfis dómstólanna og réttarvörslugáttar.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Markmið 2: Aukin skilvirkni og gæði

Uppfærsla tækni- og hugbúnaðar sem styður við stafræna málsmeðferð.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Áframhaldandi þróun og innleiðing talgreinis.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Rafræn skil til Þjóðskjalasafns hefjast.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Markmið 3: Aukið traust til dómstóla

Aukinn aðgangur almennings að upplýsingum.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Frumathugun á húsnæðismálum dómstóla.

Dómstólasýslan

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 477,2 m.kr. og er óbreytt frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 23,2 m.kr.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum