Hoppa yfir valmynd

09 Almanna- og réttaröryggi

Dómsmálaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð dómsmálaráðherra. Það skiptist í fimm mála­flokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2023–2025. Helstu áherslum, framtíðarsýn og megin­markmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Almanna- og réttaröryggi

Heildaryfirlit útgjalda og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breyting á ramma á milli áranna 2024 og 2025

Heildargjöld málefnasviðs 09 Almanna- og réttaröryggi árið 2025 eru áætluð 43.529,2 m.kr. og aukast um 662,3 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2024, eða sem svarar til 1,6%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.128,3 m.kr. milli ára, eða sem svarar til 7,7%.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhalds­ráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2023 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Almanna- og réttaröryggi

09.10 Löggæsla

Starfsemi málaflokksins er í höndum ríkislögreglustjóra og níu lögregluembætta en undir hann fellur einnig landamæraeftirlit, menntun lögreglumanna, almannavarnir og leit og björgun á landi. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðar­skiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Besta mögulega þjónustustig

Efla almenna löggæslu.

DMR/RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Efla ytra og innra eftirlit með störfum lögreglu og auka yfirsýn yfir verkefni lögreglu, þ.m.t. með árangursmælaborði og reglulegri birtingu tölfræðiupplýsinga um meðferð mála.

DMR/RLS

Innan ramma

Efla þjónustu með aukinni staf­væðingu og rafrænu gagnaflæði milli stofnana og réttarvörslu­kerfisins sem bætir yfirsýn og rekjanleika.

DMR/stofnanir réttarvörslukerfisins

Innan ramma

Innleiða komu- og brottfararkerfi á landamærum og upplýsingakerfi um heimild til ferðar.

RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Efla rannsókn og saksókn kyn­ferðisbrota, heimilisofbeldis og annars kynbundins ofbeldis.

DMR/stofnanir réttarvörslukerfisins

Innan ramma

Tryggja aukinn fjölbreytileika, jafnrétti og jöfn tækifæri innan lögreglu.

DMR/RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Markmið 2: Hæsta mögulega öryggisstig

Heildarendurskoðun almanna­varnalaga og efling almannavarna, þ.m.t. aukin áhersla á fyrir­byggj­andi aðgerðir.

DMR/RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Efling almannavarnadeildar ríkis­lögreglustjóra.

RLS

145 m.kr.

Áhersla á greiningu upplýsinga, þverfaglega samvinnu og þátttöku í alþjóðasamstarfi í ríkari mæli, til að sporna við skipulagðri brota­starfsemi, þ.m.t. fjármálabrotum og mansali.

DMR/RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Aukin samfélagslöggæsla, aðgerðageta og afbrotavarnir, m.a. til þess að takast á við tölvu- og netglæpi.

RLS/lögregluembættin

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 25.599,1 m.kr. og lækkar um 768,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.686,4 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 145 m.kr. til að styrkja almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 667,4 m.kr. vegna millifærslu á nýja fjár­lagalið  upplýsingatækniinnviða sem vistaður er undir málaflokki 10.40 Stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis. Framlaginu er ætlað að standa undir þróun og uppbyggingu upplýsingatækniinnviða ráðuneytisins og stofnana þess.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 314,4 m.kr. vegna tímabundinna verkefna sem falla niður. Þar af eru 138,8 m.kr. vegna tímabundins framlags til lögreglu árið 2024 til að mæta aðhaldskröfu það árið sem nú útfærist varanlega.
  4. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 169,5 m.kr. vegna almenns útgjaldasvigrúms málefnasviðsins sem fyrirhugað er að nýta til styrkingar skipulags á landamærum.
  5. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 83,9 m.kr. til að mæta sérstökum afkomubætandi ráðstöfunum fjármálaáætlunar og felst í tímabundinni niðurfellingu framlags í varasjóð. Málaflokkurinn er undanskilinn almennri aðhalds­kröfu út áætlunartímabil fjármálaáætlunar 2025–2029.

09.20 Landhelgi

Starfsemi málaflokksins er í höndum Landhelgisgæslu Íslands (LHG). Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Nauðsynlegt er að gera vissa fyrirvara við töfluna vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar málaflokksins og þeirra umbóta sem til stendur að ráðast í. Í þeirri vinnu sem fram undan er verður sérstök áhersla lögð á það að setja fram ný eða endurbætt markmið í samræmi við niðurstöður greiningarinnar. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Almannaöryggi, löggæsla og eftirlit í auðlindalögsögu Íslands verði tryggt

Ákvörðun um kaup eða leigu á þremur nýjum þyrlum.*

DMR/LHG

Innan ramma

Markmið 2: Viðbúnaður í leit og björgun verði í samræmi við landhelgis­gæsluáætlun

*Aðgerðin styður einnig við markmið 2

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 7.995,9 m.kr. og hækkar um 696,7 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 354,1 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 940 m.kr. og er af tvennum toga. Annars vegar er 700 m.kr. tímabundið framlag í tvö ár til að mæta veikleikum í starfsemi Landhelgisgæslunnar. Hins vegar er 240 m.kr. tímabundið framlag til eins árs til að vega upp á móti aðhaldi á árinu 2024 sem er framlengt út árið 2025.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 240 m.kr. vegna tímabundinnar frestunar aðhalds árið 2024.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 3,3 m.kr.

09.30 Ákæruvald og réttarvarsla

Starfsemi málaflokksins er í höndum embættis ríkissaksóknara og embættis héraðs­saksóknara og lögreglustjóraembættanna hvað varðar meðferð ákæruvalds. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

 

Markmið 1: Aðgangur að réttarvörslukerfinu sé greiður, unnið í samræmi við máls­meðferðar­reglur og af vandvirkni og að mannréttindi séu virt í hvívetna

Embætti ríkissaksóknara verði eflt til að sinna alþjóðlegum verkefnum sem undir embættið heyra.

Ríkissaksóknari

Innan ramma

 

Unnið verði að breytingum á eigin kerfum og samtengingu þeirra sem gerir mögulegt að flytja gögn rafrænt þvert á stofnanir í réttarvörslukerfisins. Þátttaka í verkefnum um réttarvörslu­gátt.

DMR/stofnanir réttarvörslukerfisins

Innan ramma

 

Markmið 2: Öryggi almennings, gagna og upplýsinga sé tryggt

Unnið verði að aðgerðum og áherslu­málum í tengslum við skipulagða brotastarfsemi, varnir gegn peninga­þvætti og fjármögnun hryðjuverka.

DMR/héraðssaksóknari ásamt öðrum stofnunum

Innan ramma

 

Markmið 3: Að fyrir liggi skýr mörk þjóðlendna og eignarlanda á landinu öllu, þ.m.t. eyjum umhverfis landið, eigi síðar en 2025

 

Óbyggðanefnd hefur skipt meginlandi Íslands niður í 16 svæði, auk þess sem eyjar og sker umhverfis landið teljast 17. svæðið. Áætlanir gera ráð fyrir að í árslok 2025 verði málsmeðferð lokið á öllum 17 svæðunum.

Óbyggðanefnd

Innan ramma

 

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 2.456,3 m.kr. og lækkar um 25,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 167,7 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 17 m.kr. vegna aukins kostnaðar við starfsemi Íslands hjá EUROJUST.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 28 m.kr. vegna tímabundins framlags sem veitt var til óbyggðanefndar.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 9,3 m.kr.

09.40 Réttaraðstoð og bætur

Til málaflokksins heyrir fjárhagslegur stuðningur ríkisins við þá sem leita þurfa réttar síns fyrir dómstólum en hafa ekki til þess fjárhagslegt bolmagn, greiðslur til brotaþola vegna líkamstjóns og miska sem leiðir af broti á almennum hegningarlögum og greiðsla kostnaðar sem embætti lögreglustjóra, héraðsdómstólar og embætti ríkissaksóknara greiða öðrum en starfsmönnum viðkomandi embætta vegna rannsóknar og reksturs opinberra mála. 

Undir málaflokkinn heyra jafnframt greiðslur bóta til þeirra sem sætt hafa illri meðferð eða ofbeldi sem börn við vistun á stofnunum eða heimilum á vegum ríkisins. Meðal skilyrða fyrir greiðslu sanngirnisbóta eru að fyrir liggi skýrsla vistheimilanefndar eða önnur sambærileg skýrsla sem ákveðið hefur verið að leggja til grundvallar meðferð krafna um sanngirnisbætur. Eðli málaflokksins er með þeim hætti að ekki verður fjallað um helstu verkefni varðandi starfsemi hans.

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 2.689,1 m.kr. og lækkar um 410 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 40,2 m.kr. 

Breytingar á fjárheimildum málaflokksins felast í 410 m.kr. lækkun tímabundins framlags til uppgjörs á sanngirnisbótum.

09.50 Fullnustumál

Starfsemi málaflokksins er í höndum Fangelsismálastofnunar. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2025 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2024. Þannig endur­spegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2025

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

 

Markmið 1: Fullnustuyfirvöld tryggi að sérstök og almenn varðararáhrif refsinga séu virk og stuðli að farsælli aðlögun dómþola að samfélaginu

Stefnumótun í fullnustumálum og heildar­endurskoðun laga um fullnustu refsinga.

DMR

Innan ramma

Markmið 2: Fullnustuyfirvöld verði í stakk búin til að fullnusta refsingar með öruggum, skilvirkum og árangursríkum hætti í samræmi við samfélagslega og tæknilega þróun

Bygging nýs fangelsis.

Fangelsismálastofnun/FSRE

1.400

Framkvæmdir á Sogni.

Fangelsismálastofnun

Innan ramma

Markmið 3: Öryggi almennings, gagna og upplýsinga sé tryggt

Áfram er unnið að tengingu upplýsinga­kerfa allra stofnana réttarvörslukerfisins í gegnum réttarvörslugátt. Mun það bæta yfirsýn og samfellu málsmeðhöndlunar, auka hagkvæmni, skilvirkni og upp­lýsingagjöf, auðvelda tölfræðivinnslu og stórauka gagnaöryggi.

Fangelsismálastofnun/DMR

Innan ramma

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2025 er áætluð 4.788,8 m.kr. og hækkar um 1.169,4 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 217,6 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 1.400 m.kr. vegna byggingar á nýju fangelsi í stað Litla-Hrauns. Til verkefnisins er áætlað að verja 12.600 m.kr. á tímabili fjármála­áætlunar 2025–2029 en þegar hefur verið varið 1.800 m.kr. til verkefnisins. Heildarkostnaður er áætlaður 14.400 m.kr.
  2. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 135 m.kr. vegna niðurfellingar tímabundins framlags til aðstöðubreytinga á Litla-Hrauni.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 95,6 m.kr.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum