Gæði og öryggi
Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála er ríkisstofnun sem starfar á grundvelli laga nr. 88/2021. Stofnunin er óháð í störfum sínum en heyrir stjórnskipulega undir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið.
Markmið með starfsemi Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála er að sú þjónusta sem lýtur eftirliti stofnunarinnar sé traust, örugg og í samræmi við ákvæði laga, reglugerða, reglna, samninga og leiðbeininga.
Verkefni Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála eru m.a. að:
- þróa gæðaviðmið á grundvelli bestu mögulegu þekkingar á málaflokkum á verkefnasviði stofnunarinnar,
- veita rekstrarleyfi og hafa eftirlit með því að skilyrði rekstrarleyfa séu uppfyllt,
- hafa eftirlit með gæðum þjónustu,
- taka á móti og vinna úr kvörtunum frá notendum þjónustu,
- safna upplýsingum, halda skrár og vinna úr upplýsingum frá þeim sem lúta eftirliti stofnunarinnar,
- sinna öðrum verkefnum sem stofnuninni eru falin samkvæmt ákvörðun ráðherra.
Félags- og fjölskyldumál
Síðast uppfært: 23.8.2022
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.