Bréfsefni og nafnspjöld
Nafnspjald
- Framhlið nafnspjaldsins er á íslensku en bakhlið á ensku. Texti er prentaður í bláum lit.
- Skjaldarmerkið er prentað í lit.
- Stærð 85×55 mm
- Blár litur í CMYK 100—75—0—18
- Nafnspjaldið er prentað á vandaðan mattan pappír.
- Upplýsingarnar sem koma fram á spjaldinu eru örlítið mismunandi eftir því hvort þær eru á íslensku eða ensku.

Bréfsefni
- Skjaldarmerkið er prentað í lit.
- Blár litur í CMYK 100—75—0—18
- Skjaldarmerkið er ávallt í efra vinstra horninu.
- Nafn ráðuneytis er ávallt í neðra vinstra horninu.
- Aðrar upplýsingar eru í tveim línum, í sömu stærð og texti í nafni ráðuneytis og í línu við nafn ráðuneytis.
- Gæta skal þess að texti sé hvorki of nálægt skjaldarmerki né nafni ráðuneytis.

Umslög
- Skjaldarmerkið er prentað í lit.
- Blár litur í CMYK 100—75—0—18
- Skjaldarmerkið og nafn ráðuneytis eru ávallt í efra vinstra horninu.
- Aðrar upplýsingar eru í einni línu, í sömu stærð og texti í nafni ráðuneytis og í línu við nafn ráðuneytis.
- Umslög eru til í stærðum C4, C5 og M65.

Hönnunarstaðall Stjórnarráðsins
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.
Yfirlit