Hoppa yfir valmynd
26.02.2018 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Smálán – ólán fyrir ungt fólk og efnalítið

Grein eftir Ásmund Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra
Birtist í Morgunblaðinu 24. febrúar 2018

Taka svokallaðra smálána er ört vaxandi liður í greiðsluerfiðleikum ungs fólks. Þessi tegund lána virðist hrein viðbót við aðrar tegundir skammtímaskulda. Árið 2017 voru um 70% fólks 18 – 29 ára sem sóttu um ráðgjöf og greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara með smálán. Þetta kemur fram í greiningu umboðsmanns sem ég óskaði eftir. Markaðssetningu smálánafyrirtækjanna virðist beint að ungu fólki sem á erfitt með að fóta sig á þessum lánamarkaði og lendir í greiðsluvanda. Þetta er veruleiki sem verður að bregðast við áður en staðan versnar enn frekar.

Ungt fólk leitar í vaxandi mæli til umboðsmanns skuldara

Síðastliðin tvö ár hefur þeim sem leita úrræða hjá umboðsmanni skuldara vegna greiðsluerfiðleika fjölgað um tæp 25% og voru árið 2017 tæplega 1.440. Mest hefur fjölgað í aldurshópnum 18 – 29 ára og hlutfall smálána af heildarskuldum þessa aldurshóps hefur aukist umtalsvert. Fjárhæðirnar sem þessi aldurshópur skuldar vegna smálána fara einnig hækkandi. Árið 2016 nam fjárhæð smálána að jafnaði um 400.000 kr. hjá umsækjendum um greiðsluaðlögun en var tæpar 600.000 kr. árið 2017.

Mjög hefur dregið úr vægi fasteignalána sl. tvö ár hjá þeim sem sækja um úrræði hjá umboðsmanni. Á sama tíma hefur hlutfall umsækjenda með smálán farið úr 13% í 43%.

Markhópur í veikri stöðu

Í greiningu umboðsmanns kemur fram að meirihluti þess unga fólks (18 – 29 ára) sem sótti um greiðsluaðlögun á liðnu ári bjó í leiguhúsnæði, þar af allmargir í félagslegu leiguhúsnæði. Aðeins 2,8% bjuggu í eigin fasteign og margir bjuggu í foreldrahúsum. Þorri hópsins hafði ekki lokið menntun umfram grunnskólapróf, fæstir voru í skóla, aðeins um 34% hópsins voru í vinnu og rúmur fjórðungur ungmennanna voru örorkulífeyrisþegar.

Umboðsmaður bendir á að markaðssetning smálánafyrirtækjanna beinist að ungu fólki og hópurinn sé í veikri stöðu. Einfalt er að sækja um lánin á vefnum, aðeins þarf að gefa  upplýsingar um kennitölu og bankareikning og einu skilyrðin fyrir lánveitingu er að vera ekki á vanskilaskrá.

Það verður að segjast sem er að starfsemi smálánafyrirtækja þrífst á gráu svæði, lagaramminn er ófullnægjandi og hún er ekki eftirlitsskyld á sama hátt og fjármálafyrirtæki.

Aðkallandi að bregðast við

Það er orðið aðkallandi að bregðast við til að sporna við því að ungt fólk í hópi þeirra tekjulægstu

lendi í skuldavanda vegna lána sem það tekur í fljótræði án þess að gera sér grein fyrir kostnaðinum og sjá fyrir afleiðingarnar. Við þurfum að beina sjónum að starfsemi smálánafyrirtækjanna varðandi umgjörð og eftirlit og auka þarf fræðslu um fjármál svo ungt fólk verði betur í stakk búið til að taka fjárhagslegar ákvarðanir.

Á fundi ríkisstjórnar í gær kynnti ég greiningu umboðsmanns sem dregur fram þessa alvarlegu stöðu. Aðgerða er þörf og mikilvægt að taka höndum saman, þvert á ráðuneyti og málaflokka og sem fyrst til að koma í veg fyrir að staðan versni enn frekar.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta