Hoppa yfir valmynd
18.06.2024 Matvælaráðuneytið

Vetur að vori - stuðningur eftir ó­veður - Grein birt á Vísi 15. júní 2024

Á dögunum gekk yfir mikill veðurofsi á Norðurlandi með miklum snjó sem víða hefur valdið margskonar tjóni.

Nú þegar veðrinu hefur slotað og snjórinn er farinn að bráðna blasir við gríðarlegt tjón af völdum þessa „auka veturs“ sem dundi á strax eftir sauðburð. Til að bregðast við afleiðingum kuldatíðarinnar hef ég sett á laggirnar vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á umfang tjónsins til lengri tíma og gera tillögur um aðgerðir sem gætu komið til móts við bændur vegna þess. Hópurinn fundar þétt og heldur vel utan um stöðu mála.

Nú þegar er ljóst að búfénaður hefur drepist, lömb gengið undan, borið hefur á veikindum eins og júgurbólgu, kal er á túnum og slætti mun seinka. Þá hefur ræktarland undir garðyrkju einnig hlotið skaða af veðurofsanum og æðarvarp víða ónýtt.

Önnur áhrif kuldakastsins koma ekki fyllilega í ljós fyrr en seinna. Í sláturtíð haustsins er viðbúið að færri lömb skili sér í hús, fallþungi verði lægri og uppskerubrestur verði í grænmetisrækt. Þessi atriði hafa auðvitað áhrif á afkomu bænda. Á haustmánuðum skýrist myndin hvað þessa þætti varðar og unnt verður að leggja mat á langtímaáhrif veðursins. Hér eftir sem hingað til munum við standa við bakið á bændum.

Myndin hefur verið að skýrast vegna kaltjóns á ræktarlöndum og hefur Bjargráðasjóður samþykkt verklag vegna afgreiðslu styrkumsókna vegna slíkra tjóna. Ég hvet bændur til að kynna sér það verklag vel, en skrá þarf tjón á Bændatorginu. Bjargráðasjóður mun koma til móts við bændur sem þurfa að kaupa hey á þessu ári af völdum uppskerubrests vegna kaltjóna. Það verður gert með sama hætti og í sambærilegum tjónum 2013 og 2020.

Fyrir liggur, samkvæmt minnisblaði sem ég lagði fyrir ríkisstjórn, að farið verður fram á aukafjárveitingu til sjóðsins til að mæta tjóninu þegar það verður að fullu ljóst. Þá er verið að leita leiða til að skrá annað tjón vegna veðursins með sem einföldustum hætti og hefur komið til tals að opna gátt á Bændatorginu vegna þess. Fyrirkomulagið verður kynnt síðar en ég hvet bændur til að halda vel utan um öll gögn vegna tjóns af völdum veðursins.

Saman munum við hjálpast að við að vinna vel úr þeirri stöðu sem upp er komin. Þegar áföll sem þessi hafa dunið yfir situr fólk eftir í óvissunni. Ég tel mikilvægt að við göngum skörulega fram í þessum efnum og eyðum henni.

Ég hvet bændur til þess að hlúa að sér og kynna sér verkefni á borð við bændageð sem Bændasamtök Íslands standa fyrir.

Það er í forgrunni að ná utan um ástandið og ég stend heilshugar með bændum og mun fylgjast vel þróun mála.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta