Forgangsröðun í heilbrigðismálum
Á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins hefur á undanförnum misserum verið unnið mikið starf á sviði stefnumótunar og áætlanagerðar í heilbrigðismálum. Má þar nefna mótun stefnu í upplýsingamálum heilbrigðiskerfisins, uppbyggingu og þróun fjarlækninga, aðgerðir í gæðamálum, árangursstjórnun og vinnu að breyttri skipan sjúkrahúsmála. Tilraunir eru gerðar með að fela sveitarfélögum rekstur heilbrigðisþjónustu. Enn fremur er unnið að gerð heilbrigðisáætlunar, aðgerðum á sviði forvarna, stefnumótun í geðheilbrigðismálum, frekari eflingu heilsugæslunnar og fjölmörgum þróunarverkefnum á sviði heilbrigðismála.
- Forgangsröðun í heilbrigðismálum: Niðurstöður nefndar um forgangsröðun.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 1998.