Kynntu þér réttindi þín: Upplýsingabæklingur um réttindi sjúklinga
Markmið upplýsingabæklingsins um réttindi sjúklinga er að veita notendum heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi greinargóðar upplýsingar um mikilvægustu réttindi sín. Í bæklingnum er gerð grein fyrir grundvallarréttindum sjúklinga s.s. þeim upplýsingum sem sjúklingar eiga rétt á að fá um meðferð sem þeir fá, gagnsemi hennar og þá áhættu sem henni kann að fylgja. Einnig er gerð grein fyrir rétti sjúklinga til að hafna meðferð og rétti sjúklinga til að sjá þær upplýsingar sem færðar eru í sjúkraskrá þeirra.