Skýrsla um fóstureyðingar og aðgengi að getnaðarvörnum
Í lok október 1998 var settur á laggirnar starfshópur á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins í þeim tilgangi að koma með tillögur um hvernig mætti auka aðgengi að getnaðarvörnum, auka fræðslu um þær og hvort gera mætti þær ódýrari. Auk þess skyldi starfshópurinn gera heildarúttekt á fóstureyðingum í landinu og setja fram tillögur um hvernig draga mætti úr fjölda þeirra.