Hoppa yfir valmynd
23. febrúar 2004 Matvælaráðuneytið

Stefnumótun í mjólkurframleiðslu.

Í 9. gr. núgildandi samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslu er kveðið á um að fjórum árum frá upphafi gildistíma samningsins, þann 1. september 1998, skulu samningsaðilar kanna framkvæmd hans og í framhaldi af þeirri könnun hefja viðræður um áframhaldandi stefnumótun og gerð nýs samnings. Landbúnaðarráðherra skipaði nefnd í febrúar 2003, sem fékk það hlutverk að kanna framkvæmd núgildandi samnings í samræmi við ofangreint ákvæði og gera tillögur um stefnumótun fyrir greinina og undirbúa þannig gerð næsta samnings. Nefndin hefur nú skilað skýrslu til landbúnaðarráðherra ásamt tillögum til grundvallar næsta mjólkursamningi, en núgildandi samningur rennur út þann 31. ágúst 2005.  Hér að neðan er skýrsla nefndarinnar.

 

Skýrsla um stefnumótun í mjólkurframleiðslu (pdf-skjal 3.110 KB).

 



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta