Ársskýrsla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna fyrir árið 2004
Ársfundur Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var haldinn í dag á Grand Hóteli við Sigtún í Reykjavík. Til fundarins voru m.a. boðaðir fulltrúar þeirra 14 aðila sem koma að rekstri stofunnar. Einnig voru boðaðir fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar, Akureyrarkaupstaðar, Kópavogsbæjar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, en þessir aðilar hafa gert þjónustusamninga við stofuna. Einnig fulltrúar styrktaraðila sem eru Kreditkort hf. og Samband íslenskra tryggingafélaga og aðrir sem eru í nánu samstarfi við Ráðgjafarstofuna. Á fundinum var kynnt ársskýrsla Ráðgjafarstofu fyrir árið 2004.
Ársskýrsla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna fyrir árið 2004 (PDF, 400 KB)