Hátækniiðnaður: Staða og horfur á Íslandi - Staða og stefna á Norðurlöndum og Írlandi
Tilurð, framkvæmd og gerð skýrslu
Hugmyndin að gerð úttektar á stöðu hátækniiðnaðar hér á landi kviknaði á haustdögum 2004 hjá stjórn Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja. Ástæðan var sú að upplýsingar skorti um þróun og stöðu hátækniiðnaðar á Íslandi og hvernig nágrannaþjóðir okkar hafa staðið að uppbyggingu hátækniiðnaðar í hverju landi.
Samtök iðnaðarins, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og vöruþróunar og markaðsdeild Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins stóðu straum af kostnaði við gerð hátækniskýrslunnar.
Skýrsluna má nálgast hér hún er á PDF sniði: Hátækniiðnaður: Staða og horfur á Íslandi - Staða og stefna á Norðurlöndum og Írlandi