Samstarfsvettvangur - nýsköpun, rannsóknir og þróun
Þróun opinberra innkaupa til að örva nýsköpun vöru, þjónustu og verkefna. Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Ríkiskaup, Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins gerðu með sér samkomulag í nóvember 2006 um stofnun samstarfsvettvangs um opinber innkaup. Markmið samstarfsvettvangsins er að móta sameiginlega stefnu stjórnvalda og atvinnulífs um aðferðir við opinber innkaup sem styðja við rannsóknir, þróun og nýsköpun á Íslandi. Samkomulagið er byggt á niðurstöðum áfangaskýrslu viðræðuhóps Ríkiskaupa og SI til fjármálaráðuneytis og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis sem lögð var fram í apríl 2006. Í samkomulaginu felst að ríkið tekur þátt í því sem upplýstur kaupandi að vinna með fyrirtækjum að skilgreiningum og þróun lausna sem mæta þörfum ríkisins á ýmsum sviðum. Framkvæmdanefnd sem skipuð er fulltrúum ráðuneytanna, Samtaka iðnaðarins og Ríkiskaupa hefur yfirumsjón með starfi og verkefnum sem unnið er að á vegum samstarfsvettvangsins. Samkomulagsaðilar eru sammála um að á grunni stefnu Vísinda- og tækniráðs verði efnt til breiðrar samvinnu allra aðila um að skilgreina þann árangur, forsendur og áhersluverkefni sem þarf að vinna að á slíkum samstarfsvettvangi.
Hér má nálgast kynningarbækling um samstarfið.