Saga sjávarútvegs á Íslandi
Út er komið þriðja bindi bókaflokksins um sögu sjávarútvegs á Íslandi eftir dr. Jón Þ. Þór. Þetta er lokabindi verksins sem spannar sjávarútveg frá landnámstíð til dagsins í dag. Verkið var samið fyrir tilstuðlan sjávarútvegsráðuneytisins, bókaútgáfan Hólar gaf verkið út. Öll bindin eru nú aðgengileg á vefnum endurgjaldslaust.
I. bindi – Sjósókn og sjávarfang
Upphaf fiskveiða við Ísland, sjávarútvegur
á landnáms- og þjóðveldisöld árabátaútgerðin
og öld seglskipanna, verslun og viðskipti.
II. bindi – Uppgangsár og barningsskeið
Vélvæðingin, togaraútgerðin, fyrri
heimsstyrjöldin, togarasalan til
Frakklands, saltfiskverkun, síldveiðar,
upphaf hraðfrystingar, hafréttar- og landhelgismál
Uppgangstímar togaranna, hnignunarskeið,
vélbátaútgerðin, síldveiðarnar og hrun þeirra,
fiskvinnsla, sel- og hvalveiðar, landhelgismál
og þorskastríð.