Byggingarreglugerð með áorðnum breytingum
Nú er hægt að nálgast byggingarreglugerð með áorðnum breytingum hér á heimasíðu umhverfisráðuneytisins. Hingað til hefur einungis verið hægt að nálgast fyrstu gerð reglugerðarinnar á netinu og allar síðari breytingar hverja fyrir sig. Vonast er til að þetta auðveldi starf þeirra sem þurfa að kynna sér reglugerðina.
Hér má nálgast byggingarreglugerðina með áorðnum breytingum.