Hagir og viðhorf eldri borgara. Viðhorfsrannsókn. Desember 2006 - janúar 2007
Niðurstöður könnunar á högum og viðhorfum eldri borgara sem fram fór í desember 2006 - janúar 2007. Könnunin fór fram í síma og var úrtakið 1176 manns um land allt á aldrinum 67-80 ára og 600 manna aukaúrtak í Reykjavík, handahófsvalið úr Þjóðskrá.
Könnunin var samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Landssambands eldri borgara, félagsmálaráðuneytisins og Öldrunarráðs. Framkvæmdina annaðist Capacent Gallup.