Hoppa yfir valmynd
25. júní 2008 Matvælaráðuneytið

Ferðamálastofa verði efld og fjárfesting í markaðssetningu aukin

Úr Þórsmörk
Úr Þórsmörk

Nefnd sem iðnaðarráðherra skipaði um miðjan febrúar 2008 til að fjalla um skipulag og fjármögnun ferðaþjónustu hefur skilað tillögum sínum. Tillögurnar eru mikilvægur þáttur í endurskoðun á ferðamálaáætlun og framtíðarskipan málaflokksins eftir flutning hans til iðnaðarráðuneytis.

Í starfi sínu greindi nefndin ýmsa grundvallarþætti og gildi sem tillögur hennar hvíla á og leggur ríka áherslu á að lykilatriði í aðkomu hins opinbera að skipulagi og fjármögnun í ferðaþjónustu skuli vera gegnsæi, langtímahugsun, heildstæð nálgun, sjálfbærni og mælanlegur árangur. Einnig koma fram tillögur t.d. um að Ferðamálastofa verði efld sem opin og greiðfær gátt fyrir aðkomu hins opinbera að ferðaþjónustu, samstarf stofnana sem fjalla um ferðamál verði aukið og meginferðamannastöðum (seglum) verði fjölgað. Í niðurstöðum nefndarinnar kemur einnig fram að ferðaþjónustan líði fyrir núverandi fyrirkomulag í fjárfestingu hins opinbera í ferðaþjónustu sem einkennist af „skammtímahugsun og sveiflukenndum fjárfestingum".

Tillögurnar voru kynntar á síðasta fundi ferðamálaráðs sem fagnaði þeim og hvatti til að framkvæmd þeirra hæfist sem fyrst.

Formaður nefndarinnar var Svanhildur Konráðsdóttir, formaður ferðamálaráðs og sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Aðrir í nefndinni voru alþingismennirnir Árni Páll Árnason og Ólöf Nordal, Adolf H. Berndsen, formaður Samtaka sveitarfélaga á Norðvesturlandi, Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs, Jón Karl Ólafsson, fyrrv. formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, Sigríður Á. Snævarr sendiherra og Sævar Skaptason, framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda.

Listi yfir tillögur nefndarinnar:



Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta