Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2010
Innritun í dagskóla er rafræn og fer fram á Menntagátt og verður sem hér segir:
12. - 17. apríl (framlenging til 21. apríl)
Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1994 eða síðar). Nemendur fá bréf frá ráðuneytinu með veflykli og leiðbeiningum. Ráðuneytið hvetur nemendur eindregið til að taka þátt í forinnrituninni.
20. apríl til 31. maí
Innritun eldri nemenda (fæddir 1993 eða fyrr) sem ekki eru nú í framhaldsskóla eða ætla að skipta um skóla. Umsækjendur geta nálgast veflykil á Menntagátt.
7. til 11. júní
Lokafrestur 10. bekkinga til að innrita sig eða breyta umsóknum úr forinnritun. Einkunnir nemenda verða sendar rafrænt til þeirra skóla sem þeir völdu á miðnætti 11. júní.
Starfsbrautir fyrir fatlaða
Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur er ekki rafræn. Þeir sem ekki hafa þegar sótt um geta sent framhaldsskólum skriflega umsókn fyrir 16. apríl næstkomandi. Umsóknum um nám á starfsbrautum verður svarað í síðasta lagi í lok apríl.
Nánari upplýsingar eru veittar í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og á www.menntagatt.is.