Skýrsla líffæraígræðslunefndar 2008 - 2009
Líffæraígræðslunefnd var skipuð með bréfi dags. 5. september 2007 og voru eftirtaldir skipaðir í nefndina:
- Sveinn Magnússon yfirlæknir í heilbrigðisráðuneytinu, formaður
- Kristján Guðjónsson, sviðsstjóri hjá Sjúkratryggingum Íslands
- Magnús Böðvarsson, læknir, fulltrúi Landspítala í stjórn Scandiatransplant
- Runólfur Pálsson yfirlæknir nýrnalækninga á Landspítala, fulltrúi Landspítala
Nefndinni er ætlað að vera ráðgefandi á sviði ígræðslu líffæra og að safna upplýsingum uim stöðu mála á hverjum tíma s.s. fjölda líffæragjafa og líffæraþega, biðlista og iðtíma eftir líffæraskiptum. Nefndin skilar skýrslu árlega um hið norræna samstarf sem fer fram á vegum Scandiatransplant.
Nefndin skilaði skýrslu sinni fyrir árin 2008 - 2009 til heilbrigðisráðherra í maí 2010.