Hoppa yfir valmynd
17. september 2010 Forsætisráðuneytið

Skýrsla nefndar um orku- og auðlindamál

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morgun skýrslu nefndar um orku- og auðlindamál sem skipuð var til að meta lögmæti kaupa fyrirtækisins Magma Energy á eignarhlutum HS Orku hf. og starfsumhverfi orkugeirans hér á landi. Verkefni nefndarinnar var þríþætt og hefur nefndin nú skilað niðurstöðum sínum er varða fyrsta þátt verksins.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að skoðun nefndarinnar á þeim samningum sem hún fékk aðgang að leiddi ekki í ljós neina augljósa annmarka. Frá lagalegum sjónarhóli sé ekki tilefni til að gera athugasemdir við samningana sem slíka. Magma Energy Sweden AB sé stofnað með lögformlegum hætti í Svíþjóð og uppfylli því formleg skilyrði 2. tölul. 4. gr. fjárfestingarlaganna fyrir því að eiga fyrirtæki sem stunda orkuvinnslu og orkudreifingu hér á landi. Bendir nefndin á að með hliðsjón af því megi álykta að fyrirtækið sé löglegur kaupandi að hlutum í HS Orku hf. „Sú niðurstaða að Magma Energy Sweden AB uppfylli skilyrði fjárfestingarlaganna og megi því fjárfesta í íslenskum orkuiðnaði byggist á því að horfa fyrst og fremst til þess að hið sænska félag er lögaðili á hinu Evrópska efnahagssvæði og uppfyllir þar með skilyrði laganna fyrir því að mega fjárfesta í íslenskum orkuiðnaði.“ 

Nefndin tekur þó fram að annar möguleiki hefði einnig verið tækur við skýringu og beitingu laganna. Sé litið til raunverulegra tengsla fyrirtækjanna, kanadíska móðurfélagsins og þess sænska, og leyst úr málinu á grundvelli þeirra jafnframt því að túlka ákvæði fjárfestingarlaganna með hliðsjón af markmiði þeirra og innra samhengi, hefði mátt færa fyrir því rök að kaup Magma Energy standist ekki ákvæði íslenskra laga. Nefndin leggur áherslu á að hér sé um lagalega flókin álitamál að ræða sem jafnframt varði ríka almannahagsmuni.

Reykjavík, 17. september 2010

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta