Skýrsla vinnuhóps til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á metýlfenidati
Þann 1. september 2010 skipaði heilbrigðisráðherra vinnuhóp til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á metýlfenidati.
Vinnuhópnum var ætlaður tveggja mánaða tími til að endurskipuleggja alla meðferð lyfjaflokksins, þ.m.t. endurskoðun á klínískum leiðbeiningum og aðrar þær aðgerðir sem hópurinn telur nauðsynlegar. Jafnframt var vinnuhópnum falið að tryggja að þeir sem þurfa á meðferð með þessum lyfjum að halda fái þau áfram, en það eru einkum börn og ungmenni.