Skýrsla vinnuhóps til að skipuleggja aðgerðir til að draga úr ofnotkun og koma í veg fyrir misnotkun á metýlfenidati
Heilbrigðisráðherra skipaði vinnuhóp 1. september 2010 til að skipuleggja aðgerðir sem draga úr ofnotkun og misnotkun lyfja sem notuð eru gegn athyglisbresti og ofvirkni. Er þá einkum átt við lyf sem innihalda metýlfenidat, svo sem rítalín og concerta. Áhersla var lögð á að leiðir til að sporna við misnotkun þessara lyfja mættu ekki standa í vegi fyrir meðferð þeirra sem þurfa á þeim að halda, en það eru einkum börn og ungmenni.
Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur vinnuhópsins um aðgerðir til að draga úr ofnotkun og misnotkun lyfja sem innihalda metýlfenidat. Helstu tillögur eru þessar:
- Yfirumsjón með frumgreiningu á ADHD hjá fullorðnum og eftirlit með meðferð verður bundin við geðsvið Landspítala.
- Einungis geðlæknar, barna- og unglingageðlæknar, barnalæknar og taugalæknar munu sjá um frumgreiningu á ADHD og hefja og skipuleggja meðferð í framhaldi af greiningu.
- Klínískar leiðbeiningar landlæknis frá 2007 um greiningu og meðferð vegna ADHD verða endurskoðaðar.
- Eftirlit landlæknis með ávísunum lækna á lyfjum sem innihalda metýlfenidat verður aukið.
- Komið verður í veg fyrir að einstaklingur geti fengið ávísað metýlfenidati frá mörgum læknum með nýjum reglum um útgáfu lyfjaskírteina hjá sjúkratryggingum. Einn sérfræðingur mun bera ábyrgð á ávísun þessara lyfja til viðkomandi einstaklings og verður greiðsluþátttaka sjúkratrygginga vegna lyfsins háð því. Auk sérfræðings verður unnt að skrá tiltekinn heimilislækni á lyfjaskírteinið sem getur þá endurnýjað ávísun lyfsins.
, nóvember 2010