Veiting viðurkenningar og Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, við hátíðlega athöfn í Gerðubergi 16. nóvember.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra veitti Kristínu Marju Baldursdóttur Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, við hátíðlega athöfn í Gerðubergi 16. nóvember. Þá fengu Stuðmenn sérstaka viðurkenningu fyrir framlag sitt við eflingu íslenskrar tungu. Við athöfnina söng Halldóra Eyjólfsdóttir og Daði Jakobsson lét á trompet. Þau eru bæði nemendur í tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Meðleikari þeirra var Júlíana Rún Indriðadóttir. Vala Steingrímsdóttir og Starri Snær Valdimarsson lásu ljóð. Valgeir Guðjónsson frumflutti nýtt lag um íslenska tungu. Íslandsbanki reiðir fram verðlaunafé Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar og fulltrúi bankans var viðstaddur athöfnina.