Ungt fólk 2012 : menntun, menning, íþróttir, tómstundir, hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla
Út er komið ritið: Ungt fólk 2012. Menntun, menning, íþróttir, tómstundir, hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla
Út er komið ritið Ungt fólk 2012, menntun, menning, íþróttir, tómstundir, hagir og líðan nemenda í 8., 9. og 10. bekk grunnskóla.
Æskulýðsrannsóknirnar Ungt fólk hófu göngu sína árið 1992 þegar Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála (RUM), að frumkvæði menntamálaráðuneytisins, hóf að framkvæma kannananir meðal nemenda í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum landsins. Með þessum fyrstu heildstæðu rannsóknum á högum barna og ungmenna var brotið blað í sögu mannvísindarannsókna hér á landi með tilkomu áreiðanlegra gagna um málefni þeirra. Forstöðumaður RUM var Þórólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði, en Erlendur Kristjánsson, deildarstjóri íþrótta- og æskulýðsdeildar ráðuneytisins, hefur frá upphafi og fram á þennan dag unnið að eflingu rannsóknanna.