Alþjóðlegi netöryggisdagurinn, 5. febrúar 2013
Þemað í ár er „Réttindi og ábyrgð á netinu ” og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur í tíunda sinn þann 5. febrúar næstkomandi. Þemað í ár er „Réttindi og ábyrgð á netinu ” og munu yfir 70 þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag.
Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda samstarfsnetið Insafe, og yfir 40 önnur lönd munu þennan dag leiða saman ýmsa hagsmunaðila til þess að vekja athygli á og ræða netið frá ýmsum hliðum. Samstarfsnetið hefur látið framleiða stutta auglýsingu til þess að styðja við átakið, en hún verður aðgengileg á netinu og sýnd í sjónvarpi næstu daga.
Málþing
Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl. 13.00-16.00. Málþingið er haldið í samstarfi við ráðuneyti innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst- og fjarskiptastofnun, Símann, Lenovo, Microsoft Íslandi og Háskóla Íslands. Fundarstjórar verða Diljá Helgadóttir og Sigurbergur I. Jóhannsson, ungmennaráði SAFT.
Dagskrá:
13.00 | Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið og veitir verðlaun í samkeppni um besta barnaefnið á netinu | |
13.15 |
Málstofa 1 – stofa H207 Skólinn, uppeldi og samfélagsmiðlar |
Málstofa 2 – stofa H205 Tækni, öryggi og regluverk |
|
|