Námsmatsstofnun hefur verið falin umsjón með innritun í framhaldsskóla
Námsmatsstofnun hefur verið falin umsjón með innritun í framhaldsskóla. Mun stofnunin taka við umsjón með almennri innritun nemenda á haustönn 2013, sem fram fer nú í vor. Ráðuneytið mun sjá um innritun fatlaðra nemenda á starfsbrautir.
Breytingin á ekki að hafa í för með sér nein áhrif á þá þjónustu sem veitt er því sótt verður um skólavist á Menntagátt.is á sama hátt og verið hefur, umsækjendur fá svör eftir þar til gerðum skýrum leikreglum og viðtökuskóli vinnur úr gögnum og lýkur innritun.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti mun áfram bera stjórnsýslulega ábyrgð á innritun í framhaldsskóla og úrskurða um álitamál. Námsmatsstofnun mun sjá um kynningu, framkvæmd og tæknilega útfærslu í samráði við ráðuneytið. Eftir sem áður bera skólameistarar framhaldsskóla ábyrgð á innritun nemenda skv. reglugerð nr. 1150/2008 sbr. reglugerð nr. 204/2012.